AÐALSÍÐA
UM HEÞHESTARNIR OKKAR
STÓÐHESTAR 2012
AÐILDARFÉLÖG
KYNBÓTASÝNINGAR
TENGLAR


Experience a virtual
riding tour in Iceland

 

Hit Counter
Teljari frá 8. desember 2009

Góður dagur með Guðlaugi Antonssyni hrossaræktarráðunaut (20. janúar 2012)

Búgarður - ráðgjafaþjónusta á Norðausturlandi stóð fyrir degi með hrossaræktarráðunaut á Akureyri sl. föstudag. Mikil og góð þátttaka var á þennan viðburð en um  40 manns tóku þátt. Dagskráin hófst kl. 10 og stóð til kl. 17:00. Byrjað á að fara yfir ýmsa þætti  er varða mat á sköpulagi kynbótahrossa. Eftir fyrirlestur og myndasýningu var farið í að byggingardæma 6 hross og gátu þátttakendur borið sínar tölur saman við einkunnir ráðunautsins.  Að sama skapi var tekin fyrir hæfileikadómur og var hrossunum riðið á kynbótavelli Léttis á Akureyri.  Hópurinn lét ekki kalt veður og einstaka hríðarbylji aftra sér frá því að storma út á kynbótavöll til þess að hæfileikadæma en með sama lagi og fyrr voru hæfileikadómar yfirfarnir að dómum loknum yfir kaffisopa og  vínarbrauði.

 

     


Dagur með hrossaræktarráðunaut (2. febrúar 2012)

Dagur með hrossræktarráðunaut  verður haldinn í Topreiter höllinni á Akureyri  föstudaginn 17. febrúar nk. Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur BÍ mun fara yfir helstu atriði sem lögð eru til grundvallar við einkunnagjöf í kynbótadómum bæði hvað varðar byggingu og hæfileika. Sýnd verða nokkur hross og gefst þátttakendum kostur á að gefa þeim einkunnir og bera saman við tölur ráðunautsins.

 

Þátttökugjald er kr. 4.000.-

Innifalið í þátttökugjaldi er léttur hádegisverður.

 

Tímasetning: Föstudagur 17. febrúar frá kl. 10:00 – 17:00
 

Skráning í Búgarði í síma 460-4477 eða á netfangið vignir@bugardur.is
 

Síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 14. febrúar.

 

 

Hrossaræktarfélagið Framfari - folaldasýning (26. janúar 2012)
Folaldasýning Framfara verður haldin í TopReiterhöllinni á Akureyri, laugardaginn 28. jan n.k. og hefst kl. 12:00. Sýningin verður með sama sniði og verið hefur, keppt í flokkum hestfolalda og merfolalda. Dómnefnd velur 3 efstu folöldin í hvorum flokki og eins munu áhorfendur velja "flottasta folaldið". Skráningargjald á folald er 500 kr. Veitingasala á staðnum og eins og flestir vita er mjög góð aðstaða fyrir áhorfendur. Tekið við skráningum til kl. 22 föstudagskvöldið 27. jan (til að folöldin nái að prentast í skrá). Skráningar skulu sendar á netfang fornhagi@fornhagi.is (Anna Guðrún) eða axelgrettisson@n1.is (Axel) Hægt er að greiða inn á reikn. 0302-26-4210 kt. 421007-1950 Hrossaræktarfélagið Framfari, eða á á staðnum (ekki posi).

Hrossaræktarfélagið Náttfari - skráning (26. janúar 2012)
Folalda- og ungfolasýning Hrossaræktarfélagsins Náttfara verður í Melaskjóli, Melgerðismelum, laugardaginn 28. janúar 2012. Hrossin verða sköpulagsskoðuð frá kl. 10 og hlaupaæfingar hefjast kl. 13. Eyþór Einarsson mun stýra dómshaldi. Skráningar berist til Þorsteins á Grund um tölvupóst í netfangið theg@isor.is fyrir lok fimmtudagsins 26. janúar. Skrá þarf nafn og fæðingarnúmer hrossa ásamt símfangi umráðamanns.
Kveðja frá stjórn Náttfara

Hrossaræktarfélagið Náttfari -Folaldasýning (18. janúar 2012)
Folalda- og ungfolasýning Náttfara 2012 verður haldin í Melaskjóli, Melgerðismelum laugardaginn 28. janúar n.k. Nánari útfærsla auglýst síðar en miðað er við að hlaupaæfingar hefjist kl. 13.

Skráningar með nafni og fæðingarnúmeri berist með tölvupósti til Þorsteins á Grund (theg@isor.is) fyrir kl. 21 fimmtudaginn 26. janúar.

Kveðja frá stjórn Náttfara

 

Hrossaræktin 2011 komin í Búgarð (30. nóvember 2011)

Félagar í Hrossaræktarsamtökum Eyfirðinga og Þingeyinga geta nú nálgast eintak af bókinni Hrossaræktin 2011 í Búgarði. Félagsmenn fá bókina afhenda sér að kostnaðarlausu.

Félagsmenn í Hrossræktarfélagi Suður-Þingeyinga munu geta nálgast bókina hjá formanni deildarinnar Einari Víði á Húsavík frá og með föstudeginum 2. des. Síminn hjá Einari er 869-3248. Norður-Þingeyingum er bent á að hafa samband við Vigni í síma 460-4477 eða 896-1838.

Bókin er ársrit hrossaræktarinnar, hugmynd sem byggð er að hluta til á eldri samnefndri bók sem BÍ gaf út um árabil. Að útgáfunni stendur hópur áhugafólks um hrossarækt sem einnig hefur gefið út stóðhestabók, haldið stóðhestasýningar og rekur vefinn stodhestar.com.

Í bókinni er að finna umfjöllun um tíu efstu hross í hverjum aldursflokki á árinu, umfjöllun um öll ræktunarbú sem voru tilnefnd til ræktunarverðlauna í ár, umfjöllun um öll hross sem hlutu afkvæmaverðlaun á árinu, Landsmót, Heimsmeistaramót, einlægt viðtal við Þórð Þorgeirsson sem hefur umbylt lífi sínu, tíur allra tíma og margt fleira áhugavert.

 

Ræktunarbú HEÞ 2011 er Ytri-Bægisá I (25. nóvember 2011)
 

Tilnefnd bú                                                                         Þorvar og Haukur ræktunarmenn ársins

Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga var haldinn í gær í Ljósvetningabúð. Fjölmenni var á fundinum eða um 70 manns en þessir fundir hafa ávalt verið vel sóttir af hestaáhugafólki á Norðausturlandi. Fyrirlesarar að þessu sinni voru þau Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur BÍ og Mette Mannseth tamningamaður og reiðkennari við Háskólann á Hólum. Guðlaugur fór að venju vítt og breytt yfir hrossaræktarsviðið en Mette hélt afar fróðlegt erindi um tamningu, þjálfun og undirbúning unghrossa sem stefnt er með í kynbótasýningu. Ræktendur hlutu viðurkenningar fyrir 3 efstu hross í hverjum flokki en jafnframt voru veitt sérstök verðlaun fyrir hæst dæmda kynbótahrossið (aldursleiðréttur dómur skv. viðmiðun BÍ.). Hæst dæmda hrossið var 4 vetra stóðhesturinn Eldur frá Torfunesi með einkuninna 8,37 sem jafngildir 8,67 sé tekið tillit til aldursleiðréttingar. Sex bú voru tilnefnd til ræktunarverðauna HEÞ. Þau eru í stafrófsröð: Grund II, Komma, Litla-Brekka, Torfunes, Ytra-Dalsgerði og Ytri-Bægisá I. Ræktunarbú HEÞ 2011 er Ytri-Bægisá I í Hörgársveit. Þar á bæ stunda hrossarækt þeir Haukur Sigfússon og Þorvar Þorsteinsson. Á þessu ári voru sýnd þrjú hross frá búinu í kynbótadómi. Meðaleinkunn sýndra hrossa var 8,13 og var meðalaldur þeirra 6 ár. Tvö af þeim hlutu 8,0 eða hærra í aðaleinkunn. Langefstur í þeim hópi er stóðhesturinn Stáli frá Ytri-Bægisá sem hlaut 8,41 í aðaleinkunn á Landsmótinu á Vindheimamelum sl. sumar. Ræktendur á Ytri-Bægisá hafa um nokkura ára skeið stundað farsæla hrossarækt þar sem áhersla er lögð á gæði umfram magn. Eftir að verðlaunaveitingum og erindum lauk kvaddi sér hljóðs Þorsteinn Egilson og óskaði eftir stuðningi fundarins við umsókn Funa um Landsmót á Melgerðismelum 2014. Lagði hann fram eftirfarandi tillögu sem samþykkt var samhljóða. “Haustfundur HEÞ, haldinn í Ljósvetningabúð 24. nóvember 2011, styður umsókn Hestamannafélagsins Funa um að Landsmót hestamanna 2014 verði haldið á Melgerðismelum. Jafnframt minnir fundurinn á samþykkt aðalfundar Félags hrossabænda 2011 þess efnis að landsmót skulu haldin til skiptis á Norðulandi og Suðurlandi. Á Melgerðismelum er frábær aðstaða fyrir landsmót, m.a. með nýjum hestvænum kynbótavelli. Alla aðstöðu fyrir ferðamenn er að finna innan 25 km fjarlægðar frá mótssvæðinu og á Akureyri eru öflugar samgöngumiðstöðvar. Telur fundurinn tímabært að efna aftur til Landsmóts hestamanna á félagssvæði HEÞ.”

Hér má nálgast yfirlit yfir þau hross sem hlutu viðurkenningar á fundinum.

Haustfundur og ræktunarbú (7.nóvember 2011)
Hinn árlegi haustfundur HEÞ verður haldinn í Ljósvetningabúð fimmtudaginn 24. nóvember og hefst hann kl. 20:30. Að þessu sinni verða tvö áhugaverð erindi á dagskrá: Mette Mannseth fjallar um tamningu og þjálfun ungra hrossa og Guðlaugur Antonsson fer yfir árið í hrossaræktinni. Á fundinum verður tilkynnt um val á ræktunarbúi ársins á félagssvæðinu. 6 bú eru tilnefnd að þessu sinni. Þau eru í stafrófsröð: Grund II, Komma, Litla-Brekka, Torfunes, Ytra-Dalsgerði og Ytri-Bægisá I. Sú nýbreytni verður að ræktendur (félagsmenn HEÞ) þriggja efstu hrossa í hverjum flokki á árinu hljóta viðurkenningu. Auk þessu mun efsta hross eftir aldursleiðréttingu (skv. viðmiðun BÍ) hljóta sérstök verðlaun. Allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta. Kaffiveitingar í boði samtakanna.


Sölusýning á Melgerðismelum
(4. október 2011)

Hrossaræktarfélagið Náttfari verður með sölusýningu á Melgerðismelum, Stóðréttardaginn 8. október n.k.
Boðið er upp á sýningu taminna hrossa í reið og sýningu unghrossa í Melaskjóli.
Skráning berist á netfangið theg@isor.isÞetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. með upplýsingum um:

A. Nafn hross og fæðingarnúmer þess
B. Lýsing eiganda/umráðamanns á hrossinu C. Verð D. Eiganda og/eða umráðamann

Gefin verður út sýningarskrá auk þess sem hrossin verða mynduð og þær upplýsingar gerðar aðgengilegar á Netinu.

Verðskrá sölusýningarinnar er tvískipt:
- Hross í reið, mynduð og auglýst á Netinu: 3500.-
- Ótamin hross, upplýsingar settar á Netið: 1500.-

Félagar í Náttfara fá 500.- kr afslátt á þessum verðum.
Upplýsingar fást hjá Þorsteini Egilson, 8952598 theg@isor.is

F.h. stjórnar Náttfara,
Þorsteinn á Grund

Yfirlitssýning hollaskrá (18. ágúst 2011)
Hér má nálgast hollaskrá yfirlitssýningar sem fram fer föstudaginn 19. ágúst. Sýningin hefst kl. 10:00

Hollaskrá fyrir Síðsumarsýningu á Melgerðismelum (16. ágúst 2011)
Hér má nálgast hollaskrá fyrir sýninguna. Dómar hefjast fimmtudaginn 18. ágúst kl. 7:30. Yfirlitssýning verður föstudaginn 19. ágúst og byrjar kl. 10:00 á yngstu hryssum.

Síðsumarsýning á Melgerðismelum – skráning stendur yfir (9. ágúst 2011)
Kynbótasýning verður haldin á Melgerðismelum dagana 18. og 19. ágúst. Fleiri dögum verður bætt við ef þörf krefur. Skráning stendur nú yfir en henni líkur á morgun 10. ágúst. Tekið er við skráningum í síma 460-4477 eða á netfangið vignir@bugardur.is

Kveðja
Búgarður – ráðgjafaþjónusta á Norðausturlandi
Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga

Kynbótasýning á Melgerðismelum 18. og 19. ágúst (3. ágúst 2011)
Kynbótasýning verður haldin á Melgerðismelum dagana 18 og 19. ágúst nk. Tekið er við skráningum í Búgarði, í síma 460-4477 eða á netfangið vignir@bugardur.is dagana 8. - 10. ágúst. Gefa þarf upp einstaklingsnúmer við skráningu. Sýningargjald er kr.15.000.- fyrir fulldæmt hross en kr. 10.500 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm eða hæfileikdóm. Skráningargjöld skulu lögð inn á reikning 302-13-200861, kt. 490169-1729 í síðasta lagi 10. ágúst og senda skal kvittun á netfangið vignir@bugardur.is skýring: nafn á hrossi og fæðinganúmer. Munið að kynna ykkur reglur um einstaklingsmerkingar, járningar, blóðsýni, dna-sýni og spattmyndir.

Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga
Búgarður – ráðgjafaþjónusta á Norðausturlandi

Hollaröðun fyrir yfirlitssýningu (10. júní 2011)
Yfirlitssýning hefst í fyrramálið kl. 8:00 og er byrjað á yngstu hryssum. Hér má sjá hollaskrá.

Kynbótasýning á Akureyri - Hollaröðun fyrir alla daga (6. júní 2011)
Hér er hollaröðun fyrir alla daganna. Yfirlitssýning verður haldin á laugardag og byrjar kl. 8:00

Kynbótasýning á Akureyri (5. júní 2011)
Um 160 hross eru skráð á sýninguna. Stefnt er á að hollaskrá verði birt fyrir miðnætti í kvöld. Sýningarskrá í World feng ætti þá einnig að vera til. Dómar hefjast á þriðjudagsmorgun kl. 8:00 í reiðhöllinni á Akureyri. Yfirlitssýning verður laugardaginn 11. júní.

Kynbótasýning á Akureyri (31. maí 2011)
Við minnum á að síðasti skráningar- og greiðsludagur er á morgun miðvikudaginn 1. júní.
Einnig er rétt að vekja athygli á því að sýningin mun að öllum líkindum byrja þriðjudaginn 7. júní og enda með yfirlitssýningu laugardaginn 11. júní. Þetta ræðst þó af fjölda skráninga og skýrist eftir morgundaginn. Tekið er við skráningum í síma 460-4477 eða á netfangið vignir@bugardur.is

 


Kynbótasýningu á Dalvík lokið
(30. maí 2011)
Yfirlitssýningu kynbótasýningarinnar á Dalvík lauk í gær og nældu 5 hross sér í farmiða á landsmót. Afkvæmi Blæs frá Torfunesi voru ríkjandi en hann er faðir þeirra þriggja efstu hryssa í fimm vetra flokki sem allar náðu lágmörkunum. Efst stóð Planta frá Skrúð með 8,29 í aðaleinkunn, á eftir henni kom Hátíð frá Syðra-Fjalli I með 8,17 í aðaleinkunn og fast á hæla hennar Drífa frá Ytri-Bægisá I með 8,11 í aðaleinkunn. Þá stóð efstur Blæssonurinn Möttull frá Torfunesi í flokknum stóðhestar 7 vetra og eldri með aðaleinkunn upp á 8,34 - skeiðaði upp á 9,5! Gangster frá Árgerði, jafnaldri hryssanna og efstur í sínum aldursflokki meðal stóðhestanna, náði líka lágmörkum. Hann er með 8,15 í heildareinkunn og með fjórar níur í hæfileikadómi.
Á meðfylgjandi mynd er Þorvar Þorsteinsson með tvær Blæsdætur til reiðar í verðlaunaafhendingu (mynd Arnar Sigfússon).

Kynbótasýning á Akureyri 6.-10. júní (25. maí 2011)
Kynbótasýning verður haldin á Akureyri daganna 6.-10. júní  nk. Tekið er við skráningum í Búgarði, í síma 460-4477 eða á netfangið vignir@bugardur.is   Byrjað er að taka við skráningum en síðasti skráningardagur og greiðsludagur er miðvikudagur 1. júní.  Gefa þarf upp einstaklingsnúmer við skráningu. Sýningargjald er kr.15.000.- fyrir fulldæmt hross en kr. 10.500 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm eða hæfileikdóm. Hægt er að greiða í Búgarði. Einnig má leggja inn á reikning 302-13-200861, kt. 490169-1729, og senda kvittun á netfangið vignir@bugardur.is  skýring: nafn á hrossi og fæðinganúmer. Munið að kynna ykkur reglur um einstaklingsmerkingar, járningar, blóðsýni, dna-sýni og spattmyndir.

 

Kynbótasýning á Dalvík - tímasetning og hollaskrá (24. maí 2011)
Kynbótasýningin á Dalvík mun fara fram helgina 28.-29. maí. Dómar hefjast á laugardagsmorgni kl. 8:00 en yfirlitssýning verður haldin á sunnudeginum og byrjar kl. 10:15 á yngstu hryssum en endar á elstu stóðhestum. Hér má sjá hollaröðun.

Kynbótasýning á Dalvík - breytt tímasetning (23. maí 2011)
Kynbótasýningin sem átti að hefjast á miðvikudag hefur verið frestað og er nú ákveðið að hún fari fram helgina 28. og 29. maí. Uppfærð hollaskrá verður birt á morgun þriðjudag.

Kynbótasýningu á Dalvík frestað vegna slæms veðurútlits (18.maí 2011)
Ákveðið hefur verið að fresta kynbótasýningu sem vera átti á Dalvík dagana 18.-20. maí. Sýningin verður þess í stað haldin 25.-27. maí. Ástæðan er slæm veðurspá fyrir þessa daga en útlit er fyrir snjókomu og frost. Hægt er að afskrá hross óski menn þess og verða sýningargjöld endurgreidd. Einnig væri mögulegt að bæta við nokkrum skráningum svo fremi að það rúmist á auglýstum sýningardögum. Afskráningar og skráningar þurfa að berast í síðasta lagi föstudaginn 20. maí. Best að þær berist á netfangið vignir@bugardur.is Uppfærð hollaskrá verður svo birt á www.bugardur.is og www.hryssa.is í síðasta lagi mánudaginn 23. maí.


Hollaskrá kynbótasýningar á Dalvík, uppfært 16. maí
Góð skráning er á kynbótasýninguna á Dalvík sem fram fer 18.-20. maí nk. yfir 60 hross eru skráð til leiks sem er margfalt meira en verið hefur á vorsýningum hér Norðanlands. Dómar hefjast kl. 9:00 á miðvikudagsmorgun. Yfirlitssýning fer fram á föstudaginn og byrjar kl. 10:15. Hollaskrá

Kynbótasýning á Dalvík (2. maí 2011)
Kynbótasýning verður haldin að Hringsholti við Dalvík dagana 18.-20. maí nk. Tekið er við skráningum í Búgarði, í síma 460-4477 eða á netfangið vignir@bugardur.is. Síðasti skráningardagur og greiðsludagur er mánudagur 9. maí.  Gefa þarf upp einstaklingsnúmer við skráningu. Sýningargjald er kr.15.000.- fyrir fulldæmt hross en kr. 10.500 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm eða hæfileikdóm. Hægt er að greiða í Búgarði. Einnig má leggja inn á reikning 302-13-200861, kt. 490169-1729, og senda kvittun á netfangið vignir@bugardur.is  skýring: nafn á hrossi og fæðinganúmer. Munið að kynna ykkur reglur um einstaklingsmerkingar, járningar, blóðsýni, dna-sýni og spattmyndir.

Fundargerð aðalfundar (14.4.2011)
Hér má nálgast fundargerð aðalfundar

Fréttabréf HEÞ (4. apríl 2011)
Fréttabréf HEÞ er á leið til félagsmanna. Hér er hægt að nálgast það í pdf formi.

Heimamenn - nýtt aðildarfélag að HEÞ (17. mars 2011)
Hrossaræktafélagið Heimamenn er nýtt aðildarfélag að HEÞ. Inntökuskilyrði eru nokkuð ströng og er m.a. krafist kunnáttu á tónlistarsviðinu. Sjá nánar í lögum félagsins.

Þorsteinn á Grund er nýr maður í stjórn HEÞ
(17. mars 2011)
Aðalfundur HEÞ var haldinn í Hlíðarbæ í gærkvöldi. Þorsteinn Egilson á Grund var kjörinn í stjórn í stað Höskuldar Jónssonar sem ekki gaf kost á sér. Zophonías Jónmundsson var jafnframt endurkjörinn í stjórn. Samþykkt var tillaga stjórnar um staðsetningu kynbótasýninga til næstu þriggja ára. Aðalfundargerð verður birt hér á vefnum þegar hún verður frágengin. Hér má nálgast ÁRSSKÝRSLU HEÞ og REIKNINGA.

Stóðhestar tínast inn á hryssuna (15. mars 2011)

smellið að linkinn hér til hliðar STÓÐHESTAR 2011.

Framhaldsaðalfundur Náttfara (15. mars 2011)
Framhaldsaðalfundur Hrossaræktarfélagsins Náttfara verður haldinn í Funaborg fimmtudaginn 17. marz 2011, kl. 20:30.
Á fundinum þarf að taka afstöðu til fram kominnar tillögu um úrsögn Náttfara úr Hrossaræktarsamtökum Eyfirðinga og Þingeyinga, HEÞ.     /  Stjórn Náttfara.

 


Nýr vefur í loftið - rafrænir reiðtúrar á Íslandi
(8. mars 2011)

Má bjóða þér í rafnænan reiðtúr? Smellið á myndina.

Folaldasýning Náttfara 2011-úrslit
(7. mars 2011)

Glæsilegri folaldasýningu lauk um kl. 22.30 í gærkveldi sem haldin var í Top Reiter reiðhöllinni á Akureyri og voru 42 folöld skráð 18 hestar og 24 hryssur og engin forföll. Byrjað var að fordæma seinnipartinn fyrir sköpulag og síðan kl. 20.00 voru þau metin fyrir hreyfingar og ganglag. Hlé var gert eftir að öll folöld höfðu sýnt sig og sannað og á meðan dómari reiknaði út stigin komu fram 1. verðlauna stóðhesturinn Friðrik x frá Vestri-Leirárgörðum, setin af eiganda sínum Auðbirni Kristinssyni. En vinningshafi efsta hestfolaldsins hlaut einmitt folatoll undir Friðrik x . Þar næst komu tvær hryssur úr ræktun Jóns Elvars stórbónda á Hrafnagili Hálfmósa undan Gusti frá Hóli, setin af Þorbirni Matthíassyni ( Lúlla ) og Perlu frá Hrafnagili og systir hennar Hrönn frá Hrafnagili undan Flótta frá Borgarhóli og hana sýndi Þórhallur D. Pétursson ( Tóti ). Loka atriðið voru svo þrjár systur, heimasæturnar í Hólakoti sem sýndu 3 hross. María Björk reið hryssunni Svölu frá Enni, Anna Kristín sat stóðhestinn Friðrik x sem áður hafði komið fram og síðast en ekki síst sat Auður Karen hryssuna sína Maren frá Vestri-Leirárgörðum. Áhorfendur kusu glæsilegasta folaldið og hryssan Staka frá Steinsstöðum hlaut langflest atkvæði, enda glæsihryssa þar á ferð sem einnig bar sigur úr býtum í hryssu flokknum. Staka er undan Gígjarssyninum Bessa frá Skriðu, en móðir Bessa er undan Kjarki frá Egilsstaðabæ. Spennandi foli þar á ferð. Eigendur af Stöku eru þau Þór Jónsteinsson og Sigríður Sverrisdóttir í Skriðu. Þess má einnig geta að hestfolaldið í öðru sæti, Stuðull frá Steinsstöðum er líka undan Bessa frá Skriðu og eru Þór og Sigga einnig eigendur af honum. Folatollur undir 1. verðlauna stóðhestinn Font frá Feti gefin af eigenda hans Þórhalli D. Péturssyni fengu eigendur glæsilegasta folaldsins og folatollur undir 1. verðlauna stóðhestinn Hrym frá Hofi gefandi Jón Elvar Hjörleifsson var gefinn fyrir efstu hryssuna og eins og áður segir var það hryssan Staka frá Steinsstöðum sem bar sigur úr býtum. Eigendur folaldann geta svo í næstu viku fengið afrit af dómablöðum sinna folalda og eiga að hafa samband við Ester í síma 466-3140 eða á netfangið esteranna@internet.is ef áhugi er fyrir því.

Munið fundinn með Guðlaugi, Kristni og Haraldi (4. mars 2011)
Mánudaginn 7. mars kl. 20:30 í Hlíðarbæ

Minnum á Folaldasýningu Náttfara ! (4. mars 2011)
Sem hefst í kvöld kl. 20.00 í Top Reiter reiðhöllinni á Akureyri. 40 folöld eru skráð til leiks og má þar nefna til að mynda folöld undan Mola frá Skriðu sem nýlega vann stóðhestakeppnina á World cup í Danmörku, Kappa frá Kommu, Seið frá Flugumýri, Hóf frá Varmalæk, Auð frá Lundum 2 og fl. Og fl.
Í hléinu trillar eitthvað spennandi um sem gleður augað.
FRÍTT INN !
Nefndin

 


Tvíburafolöld í Hólakoti sumarið 2010
Folaldasýning Náttfara 2011 (28. febrúar 2011)
Folaldasýning á vegum Náttfara í Eyjafjarðarsveit verður haldin í Top Reiter höllinni á Akureyri n.k. Föstudagskvöld 4. mars kl. 20.00 ef næg þátttaka fæst.
Öll folöld á Eyjafjarðarsvæðinu og í nágrenni eru velkomin. Folöldin verða fordæmd ( fyrir sköpulag ) að deginum og koma svo fram í höllinni um kvöldið þar sem úrslit verða gerð kunn og verðlaun veitt. Verðlaun eru fyrir 3 efstu folöldin í hvorum flokki, hryssur/hestar og glæsilegasta folaldið valið af áhorfendum. Dómari verður Eyþór Einarsson. Hrossaræktarbúin Hólakot og Hrafnagil ásamt Þórhalli Péturssyni gefa efsta folaldinu í hvorum flokki og því glæsilegasta að mati áhorfenda folatoll undir 1. verðlauna hestana Hrym frá Hofi, Friðrik X frá Vestri-Leirárgörðum og Font frá Feti. Skráningargjald er 1000.-kr á hvert folald og greiðist á staðnum með peningum.
Tekið er á móti skráningum á netfangið esteranna@internet.is og í síma 466-3140 allt fram til kl. 21.00 á miðvikudagskvöldið 2.mars   / Nefndin

 


Hrossarækt og hestamennska - Hlíðarbær 7. mars mánudagur
(21 febrúar 2011)
Almennur fundur um málefni hrossaræktar og hestamennsku verður haldinn í Hlíðarbæ mánudaginn 7. mars nk. og hefst hann 20:30. Frummælendur verða Kristinn Guðnason formaður Félags hrossabænda og fagráðs í hrossarækt, Haraldur Þórarinsson formaður Landssambands hestamannafélaga og Guðlaugur V. Antonsson hrossaræktarráðunautur Bændasamtaka Íslands.

Aðalfundur HEÞ verður 16. mars (16. febrúar 2011)
Aðalfundur HEÞ verður haldinn miðvikudaginn 16. mars í Hlíðarbæ og hefst hann kl. 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Kjósa skal tvo menn í stjórn til þriggja ára og tvo varamenn til eins árs. Allir félagar hafa seturétt, málfrelsi og tillögurétt á aðalfundi. Atkvæðisrétt hafa stjórnarmenn samtakanna, formenn deilda og að auki einn fulltrúi fyrir 1-20 félaga, 2 fulltrúa fyrir 21-40 félaga o.s.frv Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka þátt í málefnum félagins.
Stjórn HEÞ

Folaldssýning í Svarfaðardal (14. febrúar 2011)
Hrossaræktarfélag Svarfaðardals og ng og Hestamannafélagið Hringur hafa ákveðið að halda Folaldasýningu í Hringsholti LAUGARDAGINN 5 mars Kl. 13.30 . Einnig verður boðið upp á ungfolasýningu ef áhugi ef fyrir því. Skráning berist á netfangið zophonias@centrum.is í síðasta lagi 26 febrúar. Þar komi fram, nafn,uppruni,litur,faðir,móðir og eigandi.

Folaldasýning í Saltvík - úrslit (14. febrúar 2011)

Folaldasýning hrossaræktarfélags þingeyinga var haldin í Saltvík laugardaginn 12 feb og var þáttaka góð að venju. Keppt var í 2 flokkum og úrslit má nálgast hér.

Gandálfur frá Selfossi (12. febrúar 2011)

Á vegum Hrossaræktarfélags Svarfaðardals og ng. Sumarið 2011 verður GANDÁLFUR FRÁ SELFOSSI. IS2004187660 . Faðir: Gustur frá Hóli, Móðir: Álfadís frá Selfossi. B:8,08 H: 8,60 A: 8,39. Verð kr. 113.000.- Kynbótamatið 125. Kemur Gandálfur eftir landsmót og verður út ágúst. Pantanir berist á netfangið zophonias@centrum.is eða í síma 8926905. Taka þarf fram fyrra eða seinna gangmál. Gandálfur kemur eftir landsmót ca. 4-5 júlí. Seinna gangmál ca 8-10 ágúst. Þá verður sónað og bætt inn í hólfið.

Gustur frá Hóli (15. desember 2010)

Samkvæmt því sem komið hefur fram í fjölmiðlum hafa Hrossaræktarsamtök Austurlands nú gefið hlut sinn í stóðhestinum Gusti frá Hóli. Stjórn Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga er hugsi og undrandi yfir þeim vinnubrögðum sem meðeigendur okkar að hestinum hafa sýnt okkur eftir að sú stefna var tekin af stjórn HEÞ að koma hestinum heim í Hól til ræktenda sinna síðustu æviárin. Haustið 2009 barst stjórn HEÞ bréf frá formanni Hrossaræktarsamtaka Austurlands þar sem HEÞ var boðið að ganga inn í kauptilboð sem borist hafði í hlut Austfirðinga í Gusti og nýta sér þar með forkaupsrétt sem tilgreindur er í eigendasamningi um hestinn. Skv. bréfinu hljóðaði tilboðið upp á 400-500.000 kr. fyrir hlutinn. Eftir að stjórn HEÞ hafði nýtt sér umsaminn umhugsunarfrest var ákveðið að taka tilboðinu eins og það lá fyrir svo ljúka mætti þessu erfiða máli í samskiptum hrossaræktarsamtakanna í eitt skipti fyrir öll og í framhaldi afhenda hestinn að gjöf ræktendum og fyrri eigendum að Hóli þar sem Gustur gæti átt sér öruggt skjól í heimahögum síðustu árin. Þegar til átti að taka ákvað Hr. Aust. hinsvegar að hætta við fyrirhugaða sölu og eiga áfram sinn hlut í hestinum. Ekkert samband var haft við HEÞ varðandi gjafagerning þann sem nú er orðinn opinber og því augljóst að um samningsbrot er að ræða í tilraun til að komast fram hjá forkaupsréttar ákvæðinu sem kveðið er á um í eigandasamningnum. Skv. eigendasamningi um hestinn þar sem skírt er kveðið á um hvers kyns meðhöndlun á eignarhlutum aðila ásamt almennu siðferði í viðskiptum með sameignir manna í milli átelur stjórn HEÞ þessi vinnubrögð harðlega og harmar jafnframt það fálæti sem þeirri hugsjón að færa hestinn heim í Hól til fyrri eigenda sinna hefur verið sýnd af hálfu Hrossaræktarsamtaka Austurlands.
Gustur hefur dvalið á Dýrfinnustöðum í Skagafirði síðustu misserin við afbragðs atlæti og umhyggju heimafólks á bænum. Þrátt fyrir augljósan rétt HEÞ til athugasemda við þessi nýjustu eigendaskipti á hestinum er fyrir mestu að ljúka þessu máli með það að leiðarljósi að tryggja höfðingjanum Gusti frá Hóli sómasamlegt atlæti næstu árin í samstarfi við nýja meðeigendur.

Stjórn HEÞ

Haustfundur HEÞ - Efri-Rauðalækur ræktunarbú ársins (26. nóvember 2010)

Guðlaugur Arason hrossabóndi á Efri-Rauðalæk                                Fulltrúar búa sem tilnefnd voru til ræktunarverðlauna HEÞ

Ræktunarbú Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga árið 2010 er Efri-Rauðalækur. Á Efri-Rauðalæk stunda hrossarækt þau Guðlaugur Arason, Snjólaug Baldvinsdóttir, Baldvin Ari Guðlaugsson og Ingveldur Guðmundsdóttir. Á þessu ári voru sýnd 7 hross frá búinu í kynbótadómi. Meðaleinkunn sýndra hross var 8,14 og var meðalaldur þeirra 5,6 ár. 3 af þeim hlutu 8,0 eða hærra í aðaleinkunn. Langefstur í þeim hópi er stóðhesturinn Hraunar frá Efri-Rauðalæk sem hlaut hvorki meira né minna en 8,72 í aðaleinkunn og er það hæsta einkunn sem gefin hefur verið stóðhesti þetta árið. Ræktendur á Efri-Rauðalæka hafa í allmörg ár stunda farsæla hrossarækt og hafa hross frá þeim oft á tíðum staðið í fremstu röð í kynbótasýningum og keppnum Þetta er í þriðja sinn sem Efri-Rauðalækur hlýtur titilinn ræktunarbú HEÞ en farið var að veita þessa viðurkenningu árið 2001. Búið var jafnframt tilnefnt til ræktunarverðlaunanna á landsvísu.

Auk þess voru tilnefnd: Árgerði, Sámsstaðir og Ytra-Dalsgerði

Haustfundur HEÞ - efstu hross (26. nóvember 2010)
Ræktendur eftirtalinna hrossa fengu viðurkenningar.
Efstu hross á árinu 2010 sem ræktuð eru af félagsmönnum HEÞ.

Flokkur Hestur Ræktandi Sköpulag Hæfileikar Aðaleink.
Stóðhestar 4 vetra* Krókur frá Ytra-Dalsgerði Kristinn Hugason og Hugi Kristinsson 8,51 7,88 8,13
Stóðhestar 5 vetra Hrímnir frá Ósi Sindri Þór Sverrisson 8,08 8,49 8,32
Stóðhestar 6 vetra Kappi frá Kommu Vilberg Jónsson 8,51 8,51 8,51
Stóðhestar 7 vetra og eldri Hraunar frá Efri-Rauðalæk Guðlaugur Arason 8,49 8,88 8,72
Hryssur 4 vetra Elding frá Barká Ólafur Tryggvi Hermannsson 8,2 7,89 8,02
Hryssur 5 vetra Rauðhetta frá Kommu Vilberg Jónsson 8,18 8,25 8,22
Hryssur 6 vetra Krækja frá Efri-Rauðalæk Guðlaugur Arason 8,31 8,35 8,34
Hryssur 7 vetra og eldri Týja frá Árgerði Magni Kjartansson 8,09 8,55 8,37
Símon frá Efri-Rauðalæk hlaut einnig 8,13 í aðaleinkun. En Krókur raðast ofar þegar notaðir eru fleiri aukastafir


Mjög fróðleg grein um smitandi hósta í folöldum
(25. nóvember 2010)
Hrossaræktendur eru hvattir til að lesa þessa grein sem birtist á vef MAST í október. Sjá greinina hér.

Minnum á Haustfund Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga sem haldinn verður í Hlíðarbæ fimmtudagskvöldið 25. nóvember. Fundurinn hefst kl. 20:30.
Áhugaverð erindi - ræktunarbú ársins - hæst dæmdu kynbótahrossin - kaffi og kökur.
Verið velkomin
Stjórn HEÞ

Haustfundur HEÞ 2010 (9. nóvember 2010)
Hinn árlegi Haustundur HEÞ verður að þessu sinni haldinn í Hlíðarbæ Hörgársveit fimmtudagskvöldið 25. nóvember og hefst hann kl. 20:30. Á fundinum verður valið ræktunarbú ársins á félagssvæðinu, auk þess sem ræktendur efstu hrossa í kynbótadómi hljóta viðurkenningar. Eftirtalin 4 bú eru tilnefnd að þessu sinni: Árgerði, Efri-Rauðilækur, Sámsstaðir og Ytra-Dalsgerði. Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur BÍ fer yfir sviðið í hrossaræktinni og
Brynjar Skúlason og Sigríður Bjarnadóttir kynna verkefni sem þau unnu sem BS-verkefni á Hólaskóla og var lokaáfangi BS-náms í hestafræðum þar sl.vor. Brynjar fjallar um vöxt og stærð íslenska hestsins og Sigríður fjallar um álag á keppnishesta í fimm keppnisgreinum Meistaradeildar KS sem fór fram fyrr á þessu ári.
Kaffiveitingar í boði Samtakanna.

Ráðstefnan Hrossarækt 2010 (9. nóvember 2010)
Ráðstefnan Hrossarækt 2010 verður haldin á Hótel Sögu, laugardaginn 20. nóvember og hefst kl. 13:00. Ráðstefnan er öllum opin sem láta sig íslenska hrossarækt varða, jafnt fagfólki sem áhugamönnum.

Ráðstefnustjóri: Víkingur Gunnarsson.

Dagskrá:
13:00 Setning - Kristinn Guðnason formaður Fagráðs í hrossarækt.
13:05 Hrossaræktarárið 2010 – Niðurstöður kynbótamats - Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur BÍ.
13:30 Heiðursverðlaunahryssur 2010, fyrir afkvæmi.
13:45 Verðlaun, hæst dæmda kynbótahross ársins (aldursleiðrétt).
13:55 Verðlaun, hæsta hæfileikaeinkunn ársins, án áverka.
14:05 Erindi:
- Hreyfigreiningar á feti og tölti, Gunnar Reynisson, Landbúnaðarháskóla Íslands
- Fóðurnýting og fóðurþarfir – er íslenski hesturinn einstakur? Sveinn Ragnarsson, Háskólanum á Hólum
- Áhrif mismunandi gleiddar höfuðjárns á þyngdardreifingu hnakks, Einar Reynisson, meistaranemi í hestafræðum
15:10 Tilnefningar og verðlaun fyrir ræktunarmann/menn ársins 2010.
15:30 Kaffihlé
16:00 Umræður – orðið laust um erindin og ræktunarmál almennt.
17:00 Ráðstefnuslit.

Fagráð í hrossarækt

Opinn fundur um stöðu smitandi hósta á Akureyri (21. september 2010)
LH, FHB og FT boða sameiginlega til fundar um stöðu smitandi hósta á Hótel KEA, Akureyri, þriðjudaginn 28.september kl.20:30.
Sigríður Björnsdóttir dýralæknir hrossasjúkdóma hjá MAST, Eggert Gunnarsson bakteríufræðingur og Vilhjálmur Svansson veirufræðingur munu mæta og fara yfir stöðuna með fundargestum.
Fundurinn er öllum opinn.

HOLLASKRÁ FYRIR YFIRLITSSÝNINGU Á MELGERÐISMELUM.
Hér má sjá hollaskrá.

SÍÐSUMARSÝNING Á MELGERÐISMELUM - HOLLARÖÐUN OG TÍMASETNINGAR (17. ágúst 2010)
Um 60 hross eru skráð á Síðsumarsýningu á Melgerðismelum sem haldin verður 18. - 20. ágúst. Dómar hefjast á morgun miðvikudag kl. 15:00 og yfirlitssýning verður á föstudag og hefst kl. 10:15. Verðlaunaveitingar fara fram á laugardeginum í tengslum við Stórmót hestamanna á Melgerðismelum. Hollaskrá má nálgast hér.

SÍÐSUMARSÝNING Á MELGERÐISMELUM NÁTTFARAVELLI (4. ágúst 2010)
Síðsumarsýning verður haldin á Náttfaravellinum á Melgerðismelum 18. - 20. ágúst. Skráning í Búgarði, í síma 460-4477 eða á netfangið vignir@bugardur.is. Tekið verður við skráningum dagana 11. - 13. ágúst. Skráningargjald skal greiða í síðasta lagi 13. ágúst.   Gefa þarf upp einstaklingsnúmer við skráningu. Sýningargjald er kr.14.500 fyrir fulldæmt hross en kr. 10.000 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm eða hæfileikdóm. Hægt er að greiða í Búgarði. Einnig má leggja inn á reikning 302-13-200861, kt. 490169-1729, og senda kvittun á netfangið vignir@bugardur.is  skýring: nafn á hrossi. Auglýst með fyrirvara um næga þátttöku. Munið að kynna ykkur reglur um einstaklingsmerkingar, járningar, blóðsýni, dna-sýni og spattmyndir.

SÓNARSKOÐAÐ FRÁ GÍGJARI (4. ágúst 2010)
Hryssur sem voru hjá Gígjari á Bergsstöðum verða sónarskoðaðar mánudaginn 9. ágúst kl. 17.00 og eru umráðmenn beðnir að sækja þær á þeim tíma.

REIÐMAÐURINN (4. ágúst 2010)
Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands, í samvinnu við Landssamband hestamannafélaga og Félag hrossabænda, opna nú fyrir nýja námshópa í áfangaskipt tveggja ára nám í reiðmennsku, hrossarækt og almennu hestahaldi. Námið sem kallast Reiðmaðurinn má taka með vinnu og er hugsað fyrir áhugafólk eldra en 16 ára sem hefur áhuga á að bæta sína reiðmennsku og þekkingu á hrossarækt. Verkleg kennsla fer fram u.þ.b. eina helgi í mánuði frá september og fram í apríl. Bóklegt nám er tekið samhliða í gegnum námsvef skólans.

Reiðmaðurinn var boðinn fram fyrst árið 2008 og útskrifaðist sá hópur í vor. Nú í haust verður námið boðið fram á fimm nýju stöðum, þ.e. á Fljótsdalshéraði, Akureyri, Borgarnesi, Hafnarfirði og Flúðum. En fyrir eru námshópar á Hellu og í Hestamiðstöðinni Dal sem væntanlega útskrifast næsta vor. Fjölmargir kennarar koma að verklegri kennslu en ábyrgðarmaður námsins er tamningameistarinn Reynir Aðalsteinsson.

Allar upplýsingar um námsfyrirkomulag og verð má finna á heimasíðu skólans, www.lbhi.is/namskeid undir Reiðmaðurinn. Einnig veitir Ásdís Helga Bjarnadóttir verkefnisstjóri upplýsingar um netfangið endurmenntun@lbhi.is. Umsóknafrestur er til 6. ágúst næstkomandi.

HOLLASKRÁ OG TÍMASETNING HÉRAÐSSÝNINGAR Á AKUREYRI (12. júlí 2010)
15 hross eru skráð á Héraðssýningu á Akureyri. Sýningin hefst kl. 13:30 á fimmtudag með byggingardómum í reiðhöllinni á Akureyri. Yfirlitssýning verður haldin föstudaginn 16. júlí og hefst hún kl. 10:00.
Öll hrossin verða dæmd í einu holli og eru eftirfarandi hross og knapar skráðir til leiks.

 

1 Ísólfur Líndal Þórisson IS2004255055 Aþena frá Víðidalstungu II  
2 Viðar Bragason IS2004265444 Amanda Vala frá Skriðulandi  
3 Þorbjörn Hreinn Matthíasson IS2002266013 Fiðla frá Akureyri  
4 Þórhallur Rúnar Þorvaldsson IS2005165871 Gandur frá Garðsá  
5 Ísólfur Líndal Þórisson IS2003255500 Mynt frá Gauksmýri  
6 Viðar Bragason IS2006265448 Binný frá Björgum B
7 Ásdís Helga Sigursteinsdóttir IS2003256393 Næla frá Sauðanesi H
8 Birgir Árnason IS2004265481 Súld frá Svertingsstöðum H
9 Gísli Gíslason IS2001265200 Gígja frá Litla-Garði  
10 Mette Camilla Moe Mannseth IS2005256417 Bestla frá Kagaðarhóli  
11 Ríkarður G Hafdal IS2005257342 Hvesta frá Hafsteinsstöðum B
12 Þorbjörn Hreinn Matthíasson IS2004266960 Kolfreyja frá Litlu-Reykjum  
13 Þórhallur Rúnar Þorvaldsson IS2003265621 Hvellhetta frá Gilsbakka  
14 Ísólfur Líndal Þórisson IS2005265035 Truflun frá Bakka  
15 Viðar Bragason IS2002265441 Sóldís frá Björgum  



HÉRAÐSSÝNING Á AKUREYRI
(30. júní 2010)

Hérðassýning kynbótahrossa verður haldin á Akureyri 12. - 16. júlí. Skráning í Búgarði, í síma 460-4477 eða á netfangið vignir@bugardur.is. Tekið verður við skráningum dagana 7. og 8. júlí. Skráningargjald skal greiða í síðasta lagi 8. júlí.   Gefa þarf upp einstaklingsnúmer við skráningu. Sýningargjald er kr.14.500 fyrir fulldæmt hross en kr. 10.000 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm eða hæfileikdóm. Hægt er að greiða í Búgarði. Einnig má leggja inn á reikning 302-13-200861, kt. 490169-1729, og senda kvittun á netfangið vignir@bugardur.is  skýring: nafn á hrossi.
Munið að kynna ykkur reglur um einstaklingsmerkingar, járningar, blóðsýni, dna-sýni og spattmyndir.


Gígjar í hólf 18. júní (11. júní 2010)
Þeir hryssureigendur sem eiga pantað undir Gígjar frá Auðsholtshjáleigu eiga að mæta með hryssurnar föstudagskvöldið 18. júni á milli kl. 19 og 22 að Bergsstöðum í Aðaldal. Hægt er að bæta við 3-4 hryssum á fyrra gangmál og gildir þar fyrstur kemur fyrstur fær. Áhugasamir hafi samband við Vigni á netfangið vignir@bugardur.is eða í síma 460-4477 og 896-1838

Líklegt að Ómur komi fyrr en ætlað var (11. júní 2010)
Þeir sem eiga pantað hjá Ómi frá Kvistum í Eyjafirði í sumar geta reiknað með að gangmálinu verði flýtt. Nánar auglýst síðar. Hrossaræktarfélgið Náttfari.
 


BREYTTAR DAGSETNINGAR KYNBÓTASÝNINGA NÆSTU MÁNUÐI (4. júní 2010)
Á fundi Fagráðs í hrossarækt fimmtudaginn 3. júní voru í mörgum tilfellum ákveðnar nýjar dagsetningar fyrir þær kynbótasýningar sem ráðgerðar eru á árinu. Breytingarnar eru tilkomnar vegna kvef pestar þeirrar sem nú herjar á hrossastofninn. Haldnir voru fjölmennir fundir á norður- og suðurlandi með fulltrúum búnaðarsambanda, hrossaræktendum og knöpum þar sem línur voru lagðar varðandi æskilegar tímasetningar sýninganna. Fleiri sýningar gætu komið til ef á þarf að halda.

Dagskráin er eftirfarandi með fyrirvara um breytingar vegna þátttöku:
Borgarfjörður 7. – 8. Júní
Hella 8. – 10. Júní
Hella 28. Júní – 2. Júlí
Reykjavík 28. Júní – 2. Júlí
Skagafjörður 28. Júní – 2. Júlí
Eyjafjörður 12. – 16. Júlí
Hella 26. – 30. Júlí
Skagafjörður 26. – 30. Júlí
Borgarfjörður 3. – 6. Ágúst
Hella 9. – 13. Ágúst
Hella 16. – 20. Ágúst
Blönduós 16. – 20. Ágúst

Nánari auglýsingar um einstakar sýningar munu birtast síðar.
Guðlaugur V. Antonsson Hrossaræktarráðunautur BÍ.

HÉRAÐSSÝNINGU Á AKUREYRI FRESTAÐ (3. júní 2010)
Héraðssýningu kynbótahrossa sem vera átti dagana 7.- 11. júní á Akureyri hefur verið frestað vegna lítilla skráninga. Breytt dagsetning á sýningu verður auglýst á næstu dögum. 

FJÖLMENNI VAR Á FUNDI UM KVEFPESTINA (31. maí 2010)
Af fundi hrossaræktarsmbandanna á Norðurlandi á Hótel Varmahlíð
Það var nánast fullt út úr dyrum á Hótel Varmahlíð í gærkveldi þegar hestamenn af Norðurlandi hittust til þess að ræða um kvefpestina. Ingimar Ingimarsson formaður HSS stjórnaði fundinum fyrir hönd hrossaræktarsambandanna á Norðurlandi sem voru fundarboðendur. Vilhjálmur Svansson og Sigríður Björnsdóttir fóru vel yfir stöðu mál og upplýstu fundargesti um þá vitnesku sem þau hafa aflað um þessa pest og ræddu hana í tengslum við fyrri faralda. Guðlaugur ræddi síðan um kynbótasýningar og komandi Landsmót þar sem hann lýsti m.a. annars þeirri skoðun sinni að fresta bæri Landsmóti að sinni og halda það á Vindheimamelum að ári. Í máli dýralæknanna kom m.a. fram að ekki er búið að fá það staðfest hvaða veira það er sem veldur pestinni en góðu fréttirnar eru þær að búið er að útiloka allar helstu gerðir veira sem taldir eru mjög skæðir í hrossum. Þá kom fram að gjarnan kæmi bakteríu sýking í kjölfar veirusýkingarinnar sem myndi þá lengja sjúkdómsferlið hjá hverjum hesti. Bakterían er talin geta þrifist í nokkurn tíma í umhverfinu s.s. í safnstíum og mönnum því bent á að hreinsa út úr húsum sínum til þess að minnka smitálagið. Fyrir haustið þurfa síðan allir hestamenn að þrífa og sótthreinsa hesthúsin og reiðtygin áður en starfsemi hefst að nýju í húsunum. Ein spurningin sem Sigríður fékk var um það hvort pestin gæti borist í fólk. Á meðan hún útskýrði að það væri ekki útilokað rak Guðlaugur upp allmikinn hnerra og endaði því sú umræða í almennum hlátri.
Þessi fundur var málefnalegur, umræður líflegar og trúlega gefið uggandi hestamönnum ákveðna ró að fá svör við mörgum af þeim spurningum sem fram komu þó ljóst sé að ýmislegt er enn óljóst varðandi þess óláns pest.
(af vef Hrossaræktarsamtaka Skagfirðinga)

HÉRAÐSSÝNING Á AKUREYRI
Héraðssýning kynbótahrossa verður haldin á Akureyri 7.- 11. júní nk. Tekið er við skráningum í Búgarði, í síma 460-4477 eða á netfangið vignir@bugardur.is. Síðasti skráningardagur er 2. júní sem er jafnframt síðasti greiðsludagur skráningargjalds.   Gefa þarf upp einstaklingsnúmer við skráningu. Sýningargjald er kr.14.500 fyrir fulldæmt hross en kr. 10.000 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm eða hæfileikdóm. Hægt er að greiða í Búgarði. Einnig má leggja inn á reikning 302-13-200861, kt. 490169-1729, og senda kvittun á netfangið vignir@bugardur.is  skýring: nafn á hrossi.
Munið að kynna ykkur reglur um einstaklingsmerkingar, járningar, blóðsýni, dna-sýni og spattmyndir.


HRYMUR Í EYJAFIRÐI
(21. MAÍ 2010)

Stóðhesturinn Hrymur frá Hofi verður í Eyjafirði í sumar á vegum Jóns Elfars á Hrafnagili. Sjá nánar hér.


Mynd (tekin af heimasíðu Litla-Garðs: Tristan og Stefán Birgir
VORSÝNING Á MELGERÐISMELUM (14. MAÍ 2010)
Vorsýningu á Melgerðismelum lauk með yfirlitssýningu í gær. 37 hross mættu til dóms og þar af voru 3 einungis byggingardæmd. Einn stóðhestur náði farmiða á Landsmót. Það var Tristan frá Árgerði sem hlaut í aðaleinkunn 8,36. Sex hross hlutu 8,0 og hærra eða um 18% sýndra hrossa. Dómaskrá úr World Feng má nálgast hér.

HOLLASKRÁ Á MELGERÐISMELUM (12. maí 2010)
Yfirlitssýning hefst í fyrramálið kl. 10:00 á yngstu hryssum. En til þess að geta dreift knöpum á hollin þá skarast röðunin nokkuð mikið milli aldursflokka. Hollaskrá má nálgast hér.

VORSÝNING - DAGSKRÁ OG HOLLARÖÐUN (10. MAÍ 2010)
Rúm 40 hross eru skráð á kynbótasýningu á Melgerðismelum. Dómar hefjast kl. 8:00 miðvikudaginn 12. maí og yfirlitssýning verður fimmtudaginn 13. maí og hefst kl. 10:00. Hér má sjá hollaröðun.


TILKYNNING FRÁ HROSSARÆKTARRÁÐUNAUTI BÍ (5. maí 2010)

Varla hefur hún farið framhjá nokkrum hestamanni sú kvefpest sem þessa dagana herjar á hrossastofninn. Ljóst er að pestin er mun alvarlegri en í fyrstu var talið og virðist hrossum mjög hætt við að slá niður ef ekki er varlega farið, þó menn telji einkenni horfin.
Hinar hefðbundnu vor- og héraðssýningar kynbótahrossa munu á næstunni fara í gang af fullum þunga svo sem vant er á þessum árstíma. Ekki hefur á þessu stigi málsins verið ákveðið með neinar breytingar á fyrirliggjandi dagskrá sýninganna. Vil ég því hvetja þá sem enn hafa sloppið við pestina eða sem hafa hross sem náð hafa sér að fullu að nýta tækifærið og koma hrossum til dóms hið fyrsta. Fyrirsjáanlegt er að álag verður að vanda mikið síðustu vikur dóma og eykst væntanlega enn með tilkomu pestarinnar.
Tuttugu og sjö hross mættu til dóms á Sauðárkróki, um fjörtíu eru skráð á Blönduósi og um áttatíu í Reykjavík þannig að greinilegt er að enn eru einhver hross heilbrigð. Næstu sýningar eru síðan í Eyjafirði og Hafnarfirði.
Ákveðið hefur verið að öllum hrossum sem sýna sjúkdómseinkenni pestarinnar verði umsvifalaust vísað frá sýningunum. Enda um ótvírætt dýraverndunarmál að ræða að aðeins sé komið til dóms með hross í góðu heilbrigðis ástandi.

Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur BÍ

 


GÍGJAR KOMINN NORÐUR (4. MAÍ 2010)
Gígjar er kominn í Ytri-Bægisá og geta þeir sem eiga pantað undir klárinn farið að koma með hryssur sem eru tilbúnar. Hafið samband við umsjónarmenn Hauk (gsm 861-0311) eða Þorra (gsm 893-9491) um nánari tilhögun.

KYNBÓTASÝNING Á MELGERÐISMELUM(3. maí 2010)
Kynbótasýning verður haldin á Melgerðismelum 12.-14. maí. Skráning í Búgarði, í síma 460-4477 eða á netfangið vignir@bugardur.is. Síðasti skráningardagur er 7. maí sem er jafnframt síðasti greiðsludagur skráningargjalds.   Gefa þarf upp einstaklingsnúmer við skráningu. Sýningargjald er kr.14.500 fyrir fulldæmt hross en kr. 10.000 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm eða hæfileikdóm. Hægt er að greiða í Búgarði. Einnig má leggja inn á reikning 302-13-200861, kt. 490169-1729, og senda kvittun á netfangið vignir@bugardur.is  skýring: nafn á hrossi. Auglýst með fyrirvara um næga þátttöku.
Munið að kynna ykkur reglur um einstaklingsmerkingar, járningar, blóðsýni, dna-sýni og spattmyndir.


GÍGJAR VERÐUR HÚSGANGMÁL Í EYJAFIRÐI
(29.42010)

Ákveðið hefur verið að Gígjar verði einnig húsgangmál hér fyrir norðan. Hann mun taka á móti hryssum á Ytri-Bægisá Hörgardal á húsgangmáli en verður svo í hólfi fyrra gangmál á Bergsstöðum í Aðaldal. Hægt er að bæta við hryssum á húsgangmál. Nánari upplýsingar hér.



SMITANDI HÓSTI Í HROSSUM DREGUR DILK Á EFTIR SÉR
(29.4.2010)

Smitandi hósti breiðist áfram út meðal hrossa sem haldin eru á húsi víða um land. Enn hefur ekki fundist hvað veldur en allt bendir til að um veirusýkingu sé að ræða sem magnast upp í þétt skipuðum hesthúsum. Í kuldatíð undanfarinna vikna hefur reynst erfitt að halda góðu lofti í húsunum án þess að slái að hrossum sem gengin eru úr hárum og má reikna með að það hafi haft sitt að segja.

Smitandi hósti breiðist áfram út meðal hrossa sem haldin eru á húsi víða um land. Enn hefur ekki fundist hvað veldur en allt bendir til að um veirusýkingu sé að ræða sem magnast upp í þétt skipuðum hesthúsum. Í kuldatíð undanfarinna vikna hefur reynst erfitt að halda góðu lofti í húsunum án þess að slái að hrossum sem gengin eru úr hárum og má reikna með að það hafi haft sitt að segja.

Búið er að útiloka allar alvarlegustu veirusýkingarnar sem þekktar eru og leggjast á öndunarfæri hrossa s.s. hestainflúensu, smitandi háls og lungnakvef/fósturlát (herpes típa 1) og Rhino-kvef. Unnið er áfram að greiningu bæði á Tilraunastöðinni á Keldum og á Dýralækningastofnun Svíþjóðar. Bakteríusýkingar virðast í mörgum tilfellum fylgja í kjölfarið og geta hrossin þá fengið hita og graftarkenndan hor í nös. Bakteríuræktun hefur leitt í ljós að oft er um að ræða streptókaokka sem nú er verið að greina nánar. Slíkar sýkingar er í mörgum tilfellum hægt að meðhöndla. Því miður er að koma í ljós að mörg hross eru lengi með þetta kvef, allt upp í 4 vikur og enn sér ekki fyrir endann á því hversu lengi þau verða að jafna sig að fullu.

Áfram er ráðlagt að hvíla öll hross með einkenni og verja þau fyrir kulda og trekki. Samtímis þarf að tryggja þeim gott loft og með hlýnandi veðri ættu hrossin að geta verið meira úti. Hvíldin er mikilvægust í byrjunarfasa sjúkdómsins og hestamenn eru hvattir til að vera vel á verði fyrir fyrstu einkennum sýkingarinnar sem eru þurr hósti, glært nefrennsli og slappleiki sem þó verður aðeins vart í reið. Það er ítrekað að ekki á að koma með veika hesta í hús þar sem veikin er ekki fyrir né breiða sýkinguna út með öðrum hætti. Alls ekki má nota veika hesta til sýningar eða keppni.

Væntingar eru um að smitálagið minnki með vorinu og hestahaldið falli þá í eðlilegan farveg.
www.mast.is

 


HESTAHÓTEL Á HÁLSI (26. APRÍL 2010)
Sigurður Freygarðsson hefur opnað hestahótel á Hálsi í Fnjóskadal. Þar er boðið upp á að taka hesta í hagagöngu og fóðrun allan ársins hring. Einnig er boðið uppá graðhesta- og ungfolahólf. Háls er í um 25 mín akstri frá Akureyri.Nánari upplýsingar veitir Sigurður í síma 8692295. Hugmyndir um verð er eftirfarandi: Hestar sumartími 2.000 kr mánuðurinn, hestar vetrartími 4.000 kr mánuðurinn með gjöf, ungfolar sumartími 5.000 kr mánuðurinn, graðhestar á húsi 10.000 pr mánuðurinn með gjöf.

GLYMUR FRÁ INNRI-SKELJABREKKU (21. APRÍL 2010)
Stóðhesturinn Glymur frá Innri Skeljabrekku verður á Brúnum í allt sumar eða frá 20. júní en ekki eingöngu seinna tímabil eins og til stóð.

Mynd með frétt
ÁRÍÐANDI TILKYNNING TIL EIGENDA ÚTIGANGSHROSSA (19. apríl 2010)
Eigendur útigangshrossa um allt land þurfa að búa sig undir verja hross sín fyrir öskufalli. Of seint er að bregðast við eftir að umtalsvert öskufall er skollið á.
Miðað við veðurspá fyrir næstu daga er mest hætta á öskufalli í Rangárvallasýslu en hrossaeigendur á öllu Suður- og Suðausturlandi þurfa að vera í viðbragðsstöðu.
Þar sem mikið öskufall verður er hrossum bráð hætta búin af því að anda að sér öskunni, drekka mengað vatn og éta hana í sig með menguðu fóðri. Því þarf að hýsa öll hross á þeim svæðum. Sé það ekki hægt þarf að flytja þau á öruggari svæði.

Forðast skal þó flutninga á fylfullum hryssum, einkum ef innan við mánuður er í köstun. Sé ekki hægt að hýsa þær með góðu móti skal þeim haldið heima við hús þar sem hægt er að vatna þeim með hreinu vatni og verja fóður fyrir mengun.
Skapist hætta á langvarandi flúormengun er mikilvægast að verja trippi í vexti því þeim er hættast við varanlegu tjóni á tönnum og beinum. Þá er fylfullum hryssum sérlega hætt við kalkskorti í blóði sem er lífshættulegt ástand.
/Tilkynning frá Matvælastofnun
.

HÉR MÁ NÁLGAST NÝJASTA FRÉTTABRÉF HEÞ

AÐALFUNDUR HEÞ (29. MARS 2010)
Aðalfundur HEÞ verður haldinn þriðjudaginn 6. apríl í Ljósvetningabúð og hefst hann kl. 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Kjósa skal tvo menn í stjórn til þriggja ára og tvo varamenn til eins árs. Allir félagar hafa seturétt, málfrelsi og tillögurétt á aðalfundi. Atkvæðisrétt hafa stjórnarmenn samtakanna, formenn deilda og að auki einn fulltrúi fyrir 1-20 félaga, 2 fulltrúa fyrir 21-40 félaga o.s.frv Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka þátt í málefnum félagins.
Stjórn HEÞ.

ÁHUGAVERT KYNBÓTANÁMSKEIÐ (15. MARS 2010)
Tvö námskeið verða helgina 27. og 28. mars í Top Reiter höllinni á Akureyri. Sjá nánar hér


ATHUGASEMD FRÁ STJÓRN HROSSARÆKTARSAMTAKA EYFIRÐINGA OG ÞINGEYINGA (8. MARS 2010)

Stjórn HEÞ lýsir yfir undrun sinni á erindi Félags Hrossabænda til Búnaðarþings 2010 um Landsmót hestamanna. Stjórn HEÞ kannast ekki við að staðsetning landsmóta hafi verið til umfjöllunar á aðal- og/eða formannafundum undanfarin ár. Þegar farið er fram með svo stórt og umdeilt mál hlýtur það að vera mikilvægt fyrir stjórn slíkra samtaka að vita hug sinna félagsmanna. Það geta því varla talist eðlileg vinnubrögð að blanda félaginu í þetta viðkvæma deilumál með þessum hætti, og marka stefnu til framtíðar án þess að nokkur umræða hafi farið fram um það á vetvangi félagsins. Í greinargerð með ályktuninni er staðhæft að það sé almennt viðhorf að farsælast sé að sameinast um tvo mótsstaði. Stjórn HEÞ kannast ekki við þetta almenna viðhorf, enda engin formleg umræða farið fram um málið innan samtakanna.

 

GÍGJAR FRÁ AUÐSHOLTSHJÁLEIGU (3. MARS 2010)
Upplýsingar um Gígjar eru komnar á stóðhestavefinn okkar Sjá nánar hér.


HROSSARÆKTARFUNDUR Í HLÍÐARBÆ
(22. FEBRÚAR 2010)
Árviss hrossaræktarfundur verður haldinn í Hlíðarbæ miðvikudaginn 3. mars kl. 20:30.Frummælendur verða Kristinn Guðnason formaður Félags hrossabænda og fagráðs í hrossarækt, Sigrún Ólafsdóttir formaður Félags tamningamanna og fulltrúi í fagráði í hrossarækt og Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur Bændasamtaka Íslands.


FRÉTTIR FRÁ NÁTTFARA! ASI OG ÓMUR Í EYJAFIRÐI EFTIR LANDSMÓT
Asi frá Lundum II verður á Guðrúnarstöðum. Pantanir í síma 4631294 eða 8669420 (Ágúst og Hulda). Verð m. öllu er 120.000.- kr. (1x sónað) Dómur 4v: Sköpulag: 8.50 Kostir: 8.35 (Þar af 9.0 f. tölt, brokk, vilja/geð og feg. í reið.) Aðaleinkunn: 8.41.
Ómur frá Kvistum verður í Eyjafjarðarsveit. Pantanir á herdisarm@simnet.is og 8961249 (Stefán Birgir). Verð m. öllu er 145.000.- kr. (1x sónað) Dómur 5v: Sköpulag: 8.24 Kostir: 8.85 (Þar af 9.5 f. skeið og vilja/geð og 9.0 f. fegurð í reið) Aðaleinkunn: 8.61.
Pantanir skulu berast fyrir 10.mars 2010. Sjá einnig á linknum stóðhestar 2010


ÚRSLIT FOLALDASÝNINGAR Í SALTVÍK (15. FEBRÚAR 2010)

Hestar.
1. Jondalar frá Norðurhlíð. Eigandi: Agnar Kristjánsson. F: Vökull frá Bergsstöðum M: Von frá Eyvindarmúla.
2. Hringur frá Laxamýri. Eigandi: Elfa Mjöll Jónsdóttir o.fl. F: Álfur frá Húsavík M:Dögun frá Hjalla.
3. Seggur frá Bergsstöðum: Eigandi. Benedikt Arnbjörnsson. F: Moli frá Skriðu M: Bylting frá Bergsstöðum.
Hryssur.
1. Alda frá Saltvík. Eigandi: Bjarni Páll Vilhjálmsson. F: Adam frá Ásmundarstöðum M: Ör frá Saltvík.
2. Hamingja frá Garði. Eig: Katharina Krebs. Rækt: Guðmundur Skarphéðinss. og Enrice Ernst. F: Þorri frá Þúfu M: Sædís frá Garði.
3. Herðubreið frá Húsavík. Eigandi: Gísli Haraldsson. F: Adam frá Ásmundarstöðum M: Hrauna frá Húsavík.


FOLALDASÝNING Í SALTVÍK (10. FEBRÚAR 2010)

Folaldasýning Hrossaræktarfélags Þingeyinga verður haldin í Saltvík laugardaginn 13 febrúar kl.13.00. Skráning í hjá Snorra 8613192 stafn1@simnet.is eða Bjarna Páli  892-4645 bjarni@saltvik.is
Reiðskólinn í Saltvík sér um kaffisölu á sýningunni.


GLÓÐAR FRÁ REYKJAVÍK OG HVINUR FRÁ VORSABÆ Í EYJAFIRÐI (2. FEBRÚAR 2010)
Sjá nánar.


ASI FRÁ LUNDUM Í EYJAFIRÐI (29. JANÚAR 2010)
Sjá nánar.


GARPUR OG DALUR Í HÓLAKOTI (28. JANÚAR 2010)
Sjá nánar.


KVISTUR FRÁ SKAGASTRÖND Í EYJAFIRÐI (20. JANÚAR 2010)
Enn bætast við hátt dæmdir spennandi stóðhestar sem verða í boði á svæði HEÞ næsta sumar. Kvistur frá Skagaströnd verður hjá Einar á Brúnum í gangmáli eftir Landsmót. Sjá nánar.


ÞRISTUR FRÁ FETI Í ÞINGEYJARSÝSLU (19. JANÚAR 2010)
Stóðhesturinn Þristur frá Feti verður í hólfi seinna gangmál hjá Hrossaræktarfélagi Þingeyinga. Sjá nánar.

Mynd: HGG



HRÍMNIR FRÁ ÓSI Í HÖRGÁRDALNUM (18. JANÚAR 2010)
Stóðhesturinn Hrímnir verið til afnota hjá Hrossaræktarfélaginu Framfara í löngu gangmáli eftir Landsmót. Sjá nánar.

 


MÖTTULL OG BLÆR FRÁ TORFUNESI (11. JANÚAR 2010)
Stóðhestarnir Möttull og Blær verða til notkunar í Torfunesi á húsmáli og fram að Landsmóti. Sjá nánar hér til hliðar.



FOLALDASÝNING NÁTTFARA Í EYJAFIRÐI (11. JANÚAR 2010)
Þá liggja fyrir úrslit folaldasýningar Náttfara sem haldin var í Melaskjóli á Melgerðismelum í dag Laugardag. Dómari var Eyþór Einarsson. Skráð voru til leiks 42 hryssur og 24 hestar ásamt 6 ungfolum fæddum 2008 og 2 ungfolum fæddum 2007. Byggingadómar fóru fram fyrir hádegi og hófst svo veislan kl. 13.00. Óhætt er að segja að stórbóndinn Jón Elvar á Hrafnagili og kona hans Berglind hafi verið sigurvegarar sýningarinnar þegar að á heildina er litið en þau áttu hestfolaldið í þriðja sæti sem var jafnframt kosið glæsilegasta folald sýningarinnar af áhorfendum, ásamt tveimur efstu hryssunum líka. Þá áttu þau folana í öðru og þriðja sæti fædda 2008 og folann í öðru sæti fædda 2007 en þar voru bara 2 skráðir til leiks. Jónas og Kristín Litla-Dal áttu 2 efstu hestana og svona til gamans að þá eru efsta hryssan og efsti hesturinn bæði undan Þokka frá Kýrholti. Mynd til vinstri er af Auðbirni í Hólakoti (tv) og Jóni Elfari á Hrafnagili. Folaldið á myndinni th. er Marra frá Hólakoti.  Kveðja stjórnin: Auðbjörn Kristinsson Hólakoti, Ester Anna Eiríksdóttir Hólakoti, Valur Ásmundsson Hólshúsum og Ævar Hreinsson Fellshlíð. Nánar um úrslit hér.

 


FOLALDASÝNING Á DALVÍK (8. JANÚAR 2010)
Folaldasýnig var haldin í Hringsholti sunnudaginn 3. janúar sl. Þátttaka var mjög góð en um 50 folöld voru skráð til sýningarinnar. Einnig voru tveir ungfolar sýnir þeir Noi frá Hrafnstöðum og Íslendingur frá Dalvík. Áhorfendur voru töluvert margir þó svo að kalt hafi verið á mannskapnum, en í hléi var boðið uppá kaffi, kakó og smákökur í félagsaðstöðu hestamannafélagsins. Hér má sjá úrslit. Á meðfylgjandi mynd er eigendur hryssna að taka við verðlaunum. Frá vinstri: Þorsteinn Hólm Stefánsson, Guðrún Rut Hreiðarsdóttir og Þóra Gunnsteinsdóttir.


RANGFÆRSLUR Í FRÉTT
(8. JANÚAR 2010)

Í frétt um sýningaráætlun 2010 fór ritstjóri hryssu út um holt og móa þegar hann sagði að Kaspar frá Kommu hefði verið hæst dæmdi stóðhestur á svæði HEÞ árið 2009. Hið rétta er að Grunnur frá Grund var hæst dæmdur með einkuninna 8,47. Kaspar hlaut reyndar prýðiseinkunn líka eða 8,40. Ritstjóri biður aðstandendur afsökunar á þessum mistökum. Grunnur er í þjálfun hjá Erlingi Erlingssyni tamningamanni í Langholti og er stefnt á að sýna hann í kynbótadómi í vor.



SÝNINGARÁÆTLUN 2010 (6. JANÚAR 2010)
Þá liggur fyrir áætlun um kynbótasýningar ársins
sjá hér. Myndin er af Grunni frá Grund en hann var hæst dæmdi stóðhestur á svæði HEÞ árið 2009. Knapi á mynd er Erlingur Erlingsson.

 


FOLALDASÝNING NÁTTFARA (4. JANÚAR 2010)
Folalda- og ungfolasýning hrossaræktarfélagsins Náttfara í Eyjafjarðarsveit og nágrenni fer fram laugardaginn 9. janúar kl.13.00 í Melaskjóli á Melgerðismelum. Keppt verður í tveimur flokkum, hryssur og hestar, og einnig er hægt að fá mat á  ungfola fædda 2007 og 2008. Sú nýbreytni verður tekin upp að sýnendur mæta með folöldin á Melgerðismela  kl. 10 þar sem þau verða byggingadæmd. Eigendur eru ekki skyldugir til að vera á staðnum allan tímann en verða að mæta þegar keppnin hefst kl. 13.00. Dómari verður Eyþór Einarsson
Skráning er hjá Auðbirni í Hólakoti í síma  864-8000 og á tölvupóstfang
audbjorn@nett.is. Það sem fram þarf að koma:  Nafn, uppruni, kyn, litur, faðir, móðir og eigandi. Síðasti skráningardagur er þriðjudagur 5. janúar.
Sýningarstjórn



Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og þingeyinga senda félagsmönnum sínum sem og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári og þakka samskiptin á árinu sem er að líða.



GLYMUR VERÐUR Í EYJAFIRÐI (15. DESEMBER 2009)
Stóðhesturinn Glymur frá Innri-Skeljabrekku verður á Brúnum í Eyjafjarðarsveit næsta sumar. Um er að ræða langt gangmál frá Landsmóti og eitthvað fram á haustið. Glymur hlaut fyrir hæfileika 8,67 aðeins 4 vetra gamall sem mun vera hæsta hæfileikaeinkunn sem 4 vetra stóðhestur hefur hlotið. Sjá einnig í flipa hér til hliðar Stóðhestar 2010. Mynd: Jens Einarsson.



VILMUNDUR FRÁ FETI Í SVARFAÐARDAL
(23. NÓVEMBER 2009)

Stóðhesturinn Vilmundur frá Feti verður á vegum Hrossaræktarfélags Svarfdæla seinna gangmál 2010. Vilmundur er hátt dæmdur stóðhestur (8,56) undan heiðursverðlaunahrossunum Orra frá Þúfu og Vigdísi frá Feti. Hann stendur feikna vel í kynbótamatinu með 129 stig og 7 dæmd afkvæmi. Verð er kr. 160.000.- (allt innifalið þ.e. vsk., sónarskoðun og hólfagjald). Zophonías tekur á móti pöntunum í síma 892-6905 eða á netfangið  zophonias@centrum.is . Mynd er tekin af heimasíðu Fet búsins en þar má nálgast frekari upplýsingar um hestinn www.fet.is


ERINDI UM ÁVERKASKRÁNINGU Á HAUSTFUNDI (16. nóvember 2009)
Hér
má nálgast glærur sem Jónas Vigfússon sýndi með erindi sínum um áverka á kynbótahrossum 2009.
 

KOMMA ER RÆKTUNARBÚ HEÞ 2009 (16. nóvember 2009)

Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga var haldinn 12, nóvember sl. í Ljósvetningabúð í Þingeyjarsveit. Titilinn Ræktunarbú ársins hlaut að þessu sinni Komma í Eyjafjarðarsveit. Að búinu standa Vilberg Jónsson og Kristín Sigvaldadóttir. Árangur ársins var virkilega góður og var búið einnig tilnefnt á landsvísu af Bændasamtökum Ísland. 4 hross voru sýnd í kynbótadómi og hlutu þau öll fyrstu verðlaun. Efstur þeirra er stóðhesturinn Kaspar sem hlaut í aðaleinkunn 8,40 og hefur hann einnig náð góðum árangri á keppnisvellinum. Næst hæstu einkunn hlaut 4 vetra unghryssan Rauðhetta með 8,11. Meðaleinkunn sýndra hrossa er 8,16 og meðalaldur er tæplega 6 ár. Komma hefur um árabil komið fram með athyglisverða gripi sem sýnd hafa verið í kynbótasýningum og á keppnisvellinum. Vilberg og Kristín eru því vel að þessum titli komin og fylgja hér hamingjuóskir frá stjórn HEÞ. Á mynd til vinstri er Vilberg í Kommu hlaðinn viðurkenningum fyrir ræktunarbúið en hann ræktaði jafnframt efsta stóðhest í elsta flokki og efstu hryssuna í 4v. flokki. Á mynd til hægri er fulltrúar þeirra búa sem hlutu tilnefningu. Frá vinstri talið: Þorsteinn Egilson Grund II, Guðlaugur Arason Efri-Rauðalæk, Vilberg Jónsson Kommu, Vignir Sigurðsson Litlu-Brekku og Baldvin Baldvinsson Torfunesi (Myndirnar tók Rósberg Óttarsson).

Ræktendur efstu hrossa í hverjum aldursflokki hlutu viðurkenningu: 4v. hryssur: Rauðhetta frá Kommu (8,11). Ræktandi: Vilberg Jónsson 5v. hryssur: Krækja frá Efri-Rauðalæk (8,30). Ræktandi: Guðlaugur Arason 6v. hryssur: Elding frá Torfunesi (8,18). Ræktandi: Baldvin Baldvinsson 7v.oe. hryssur: Myrkva frá Torfunesi (8,47). Ræktandi: Baldvin Baldvinsson 4v. Stóðhestar: Þorri frá Möðrufelli (8,11). Ræktandi: Matthías Eiðsson 5v. Stóðhestar: Grunnur frá Grund II (8,47). Ræktandi: Þorsteinn Egilson 6v. stóðhestar: Kiljan frá Árgerði (8,30). Ræktandi: Magni Kjartansson 7v.oe. stóðh: Kaspar frá Kommu (8,40). Ræktandi: Vilberg Jónsson.
 

TILNEFND BÚ TIL RÆKTUNARVERÐLAUNA HEÞ (10. nóvember 2009)
Minnum á haustfund HEÞ sem verður haldinn í Ljósvetningabúð 12. nóvember nk. kl. 20:30. Á fundinum verður valið ræktunarbú ársins á félagssvæðinu. Eftirtalin bú eru tilnefnd:

Efri-Rauðilækur, Grund II, Litla-Brekka, Komma, og Torfunes.

Auk þess hljóta ræktendur efstu hrossa í kynbótadómi viðurkenningar. Sú nýbreytni verður að veita ræktendum viðurkenningar fyrir efstu hross í hverjum aldursflokki. Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur fer yfir sviðið í hrossaræktinni og Jónas Vigfússon Litla-Dal flytur erindi um áverkaskráningar kynbótahrossa sumarið 2009. Kaffiveitingar í boði Samtakanna.
 

HAUSTFUNDUR HEÞ  (27. október  2009)
Hinn árlegi Haustundur HEÞ verður að þessu sinni haldinn í Ljósvetningabúð 12. nóvember og hefst hann kl. 20:30. Á fundinum verður valið ræktunarbú ársins á félagssvæðinu, auk þess sem ræktendur efstu hrossa í kynbótadómi hljóta viðurkenningar. Sú nýbreytni verður að veita nú viðurkenningar fyrir efstu hross í hverjum aldursflokki. Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur fer yfir sviðið í hrossaræktinni og unnið er að því að fá fleiri áhugaverð erindi. Verður það auglýst þegar nær dregur. Kaffiveitingar í boði Samtakanna.


SÍÐSUMARSÝNING Á AKUREYRI - HOLLASKRÁ (17. ÁGÚST 2009)

Tæp 80 hross eru skráð á síðsumarsýningu kynbótahrossa á Akureyri. Sýningin hefst kl. 8:00 miðvikudaginn 19. ágúst. Yfirlitssýningin hefst svo kl. 10:00 á föstudagsmorgun og verður byrjað á 4 vetra hryssum. Hér má nálgast HOLLASKRÁ.

 

SÍÐSUMARSÝNING Á AKUREYRI (29. júlí  2009)
Kynbótasýning verður haldin á Hlíðarholtsvelli á Akureyri 19. -  21. ágúst nk. Skráning í Búgarði, í síma 460-4477 eða á netfangið vignir@bugardur.is. Tekið er við skráningum dagana 11. - 13. ágúst. Síðasti greiðsludagur er 13. ágúst. Gefa þarf upp einstaklingsnúmer við skráningu. Sýningargjald er kr.13.500 fyrir fulldæmt hross en kr. 9.000 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm (eða hæfileikadóm, sjá reglur) .

Hægt er að greiða í Búgarði. Einnig má leggja inn á reikning 302-13-200861, kt. 490169-1729, og senda kvittun á netfangið vignir@bugardur.is  skýring: nafn á hrossi. Til þess að geta fengið sýningargjald endurgreitt þarf að tilkynna forföll í síðasta lagi 17. ágúst .


YFIRLITSSÝNING KYNBÓTAHROSSA
11. júní 2009 KL.14:25

Yfirlitssýning kynbótahrossa á Héraðssýningu á Melgerðismelum, Náttfaravelli, fer fram föstudaginn 12. júní og hefst kl. 09:00 á hryssum 4v.
Röð sýningaflokka er eftirtalin:
4v. hryssur
5v. hryssur
6v. hryssur
7v. og eldri hryssur
4v. stóðhestar
5v. stóðhestar
6v. stóðhestar
7v. og eldri stóðhestar

UPPFÆRÐ HOLLARÖÐUN 8. JÚNÍ KL. 17:26
hollaskrá - smella hér

HÉRAÐSSÝNING Í EYJAFIRÐI (25. maí 2009)
Kynbótasýning verður haldin á Melgerðismelum 9.-12. júní nk. Skráning í Búgarði, í síma 460-4477 eða á netfangið vignir@bugardur.is. Tekið er við skráningum dagana 2.- 3. júní. Síðasti greiðsludagur er 3. júní. Gefa þarf upp einstaklingsnúmer við skráningu. Sýningargjald er kr.13.500 fyrir fulldæmt hross en kr. 9.000 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm (eða hæfileikadóm, sjá reglur) .

Hægt er að greiða í Búgarði. Einnig má leggja inn á reikning 302-13-200861, kt. 490169-1729, og senda kvittun á netfangið vignir@bugardur.is  skýring: nafn á hrossi. Til þess að geta fengið sýningargjald endurgreitt þarf að tilkynna forföll í síðasta lagi 8. júní.

Varðandi hesthúspláss á svæðinu er vísað á Jónas Vigfússon í gsm 861-8286.

SKRÁ Á SÝNINGU

 

Geisli frá Sælukoti hjá Hrossaræktarfélagi Þingeyinga (20. maí 2009)
Sjá nánar á link hér til hliðar.

 

VORSÝNING Á DALVÍK - DAGSKRÁ OG HOLLARÖÐUN (11. maí 2009)
Þá liggur fyrir dagskrá Vorsýningar á Dalvík. Alls eru 20 hross skráð í sýninguna. Öll hrossin verða dæmd í einu holli. Dómar hefjast kl. 14:00 á fimmtudag og yfirlitssýning verður svo föstudag og hefst hún kl. 9:00. Röð hrossa í sýninguna er eftirfarandi:
 
Nr. Röð hrossa í holli   Sýnandi
1 IS2005156297 Gleypnir frá Steinnesi   Tryggvi Björnsson
2 IS2002287614 Gusa frá Nýjabæ   Auðbjörn Kristinsson
3 IS2005155119 Erró frá Lækjamóti B Guðrún Rut Hreiðarsdóttir
4 IS2004257807 Gloppa frá Varmalæk 1   Tryggvi Björnsson
5 IS2002265253 Jódís frá Akureyri   Auðbjörn Kristinsson
6 IS2005166213 Gyllingur frá Torfunesi B Baldvin Kr. Baldvinsson
7 IS2003266630 Hryðja frá Hrafnsstöðum   Ríkarður G. Hafdal
7 IS2003155501 Ræll frá Gauksmýri   Tryggvi Björnsson
8 IS2004165170 Íslandsblesi frá Dalvík   Gísli Gíslason
9 IS2002257474 Rut frá Stóru-Gröf ytri   Auðbjörn Kristinsson
10 IS2003255062 Samba frá Miðhópi   Tryggvi Björnsson
11 IS2001158455 Kvistur frá Enni   Sölvi Sigurðarson
12 IS2000265016 Perla frá Kvíabekk B Kristín Rós Hjálmarsdóttir
13 IS2003256331 Sveifla frá Þingeyrum   Auðbjörn Kristinsson
14 IS2004256392 Stefna frá Sauðanesi   Tryggvi Björnsson
15 IS2005165900 Sleipnir frá Halldórsstöðum B Stefán B. Stefánsson
16 IS2005165444 Þór frá Björgum B Viðar Bragason
17 IS2006166792 Hamar frá Stóru-Laugum B Elín Einarsdóttir
19 IS2000258321 Þota frá Reykjum   Auðbjörn Kristinsson
20 IS2003256287 Viola frá Steinnesi   Tryggvi Björnsson


VORSÝNING Í EYJAFIRÐI
(4. maí 2009)
Kynbótasýning verður haldin í Hringsholti, Dalvík 13.-15. maí nk. Skráning í Búgarði, í síma 460-4477 eða á netfangið vignir@bugardur.is . Skráning er hafin en síðasti skráningar- og greiðsludagur er föstudagurinn 8. maí . Gefa þarf upp einstaklingsnúmer við skráningu. Sýningargjald er kr.13.500 fyrir fulldæmt hross en kr. 9.000 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm (eða hæfileikadóm, sjá reglur) . Hægt er að greiða í Búgarði. Einnig má leggja inn á reikning 302-13-200861, kt. 490169-1729, og senda kvittun á netfangið vignir@bugardur.is skýring: nafn á hrossi. Stóðhesta 5v. og eldri þarf að vera búið að röntgenmynda m.t.t. spatts, ásamt því að taka DNA-sýni og blóðprufu. Reglur um kynbótasýningar má nálgast á heimasíðu B.Í. http://www.bondi.is/Pages/1205. Þessi sýning er auglýst með fyrirvara um næga þátttöku.
                                                                           
SKRÁNING Á VORSÝNINGU
Búgarður – ráðgjafaþjónusta á Norðausturlandi
Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga

SÝNINGARÁÆTLUN 2009 (26. mars 2009)
Hér má nálgast sýningaráætlun vegna kynbótasýninga 2009.

NÝIR STÓÐHESTAR KOMNIR Á SÍÐUNA  (26. mars  2009)
Roði, Blær, Adam, Vaðall, Stáli, Dósent, Máttur, Flipi, Feldur, Kristall.
Kíkið endilega á linkinn stóðhestar 2009.

RÍKARÐUR HAFDAL KOSINN FORMAÐUR HEÞ (19. mars 2009)
Aðalfundur HEÞ var haldinn 17. mars sl. í Hringsholti Svarfaðardal. Ríkarður G. Hafdal tamningamaður og hrossabóndi í Glæsibæ II Hörgárbyggð var kosinn formaður í stað Baldvins Kr. Baldvinssonar í Torfunesi. Þar sem Ríkarður var stjórnarmaður fyirir þurfti að kjósa annan mann í stjórn í hans stað. Nýr maður í stjórn er Bjarni Páll Vilhjálmsson Húsavík en hann er einnig nýkjörinn formaður Hrossaræktarfélags Suður-Þingeyinga. 

 


Feldur frá Hæli verður í Svarfaðardal. Sjá link hér til hliðar.


ÚTTEKT Á HROSSUM FYRIR FÁKA OG FJÖR
(16. mars 2009)
Sunnudaginn 29. mars kl. 14:00 á að taka út topp kynbótahross, gæðinga, stóðhesta og ræktunarbú fyrir sýninguna Fákar og Fjör. En fyrir þá sem ekki vita er Fákar og Fjör hestaveisla sem haldin verður á Akureyri í reiðhöll Léttis dagana 17. og 18. apríl.

Hestaáhugamenn ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi á sýningunni en boðið er uppá fjölbreytt og skemmtileg sýningaratriði auk áhugaverðra fyrirlestra.
Þeir sem telja sig hafa eitthvað spennandi á sínum snærum og hafa áhuga á að vera með í þessari hestaveislu vinsamlegast hafið samband við Friðrik í síma 896-5309
     
 

AÐALFUNDUR HEÞ (12. mars 2009)
Aðalfundur HEÞ verður haldinn í Hringsholti Svarfaðardal þriðjudaginn 17. mars og hefst hann kl. 20:30.

Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.

Stjórn HEÞ leggur fram tillögu um lagabreytingu á 3 gr. um félagsaðild. Auk þess leggur Jónas Vigfússon fram tillögu að lagabreytingu á 6 gr. um skipun stjórnar.

Kjósa skal formann HEÞ til næstu þriggja ára. Núverandi formaður Baldvin Kr. Baldvinsson Torfunesi gefur ekki kost á sér til endurkjörs.

Einnig skal kjósa tvo varamenn til eins árs. Þeir eru nú Þorvar Þorsteinsson og Auðbjörn Kristinsson.

Kjósa skal skoðunarmenn reikninga og einn til vara til tveggja ára. Þeir eru nú: Rafn Arnbjörnsson og Jósavin Gunnarsson og til vara Þorvaldur Hreinsson.

Allir félagar hafa seturétt, málfrelsi og tillögurétt á aðalfundi. Atkvæðisrétt hafa stjórnarmenn samtakanna, formenn deilda og að auki einn fulltrúi fyrir 1-20 félaga, 2 fulltrúa fyrir 21-40 félaga o.s.frv

Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka þátt í málefnum félagins.
Stjórn HEÞ
 

HROSSARÆKTARFUNDUR Í HLÍÐARBÆ (24. febrúar 2009)
Árviss fundur með Guðlaugi Antonssyni Hrossaræktarráðunaut og Kristni Guðnasyni formanni Félags
Hrossabænda verður haldinn í Hlíðarbæ miðvikudaginn 4. mars og hefst hann kl. 20:30.

MARKÚS OG FLÓTTI KOMNIR Á STÓÐHESTSÍÐUNA (18.febrúar 2009) 
Sjá nánar hér til hliðar á stóðhestar 2009.

JÓN ELVAR Á HRAFNAGILI KAUPIR 1/6 HLUT Í HRYM FRÁ HOFI (17. febrúar 2009)
   

Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga hafa selt 1/6 hlut í stóðhestinum Hrym frá Hofi. Fyrir áttu Samtökin þriðjungshlut. Kaupandi hlutarins er Jón Elvar Hjörleifsson kúabóndi og hrossaræktandi að Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit. Hrymur er glæsilegur klárhestur með tölti. Hann var sýndur árið 2002 og hlaut þá í aðaleinkunn 8,20. 3 hross undan honum hafa verið sýnd til fyrstu verðlauna. Allmörg tryppi eru nú í tamningu og þjálfun hér á svæðinu og verður spennandi að fylgjast með framgangi þeirra í vor og sumar. Mynd til hægri er tekin í dag við undirritun kaupsamnings. Frá vinstri talið: Zophonías Jónmundsson gjaldkeri, Jón Elvar Hjörleifsson og Baldvin Kr. Baldvinsson formaður.

AÐALL, MOLI OG ÞORRI AUGLÝSTIR TIL NOTKUNAR (17. febrúar 2009)
Nánari upplýsingar hér.

FOLALDASÝNING - UNGFOLASÝNING - SÖLUSÝNING (27. janúar 2009)
Laugardaginn 31. janúar verður mikið um að vera í reiðhöllinni á Akureyri. Um morguninn kl. 11:00 verður forskoðun á folöldum hérna á Akureyrarsvæðinu. Valin verða folöld til að keppa í úrvalsýningu sem hefst sama dag kl. 13:30. En þá verður úrvalssýning á verðlauna folöldum frá Létti og aðildafélögum HEÞ.  Einnig verður ungfolakynning á eftir folaldasýningunni. Aðgangseyrir er 500 kr. en frítt er fyrir 13 ára og yngri. Í kjölfarið verður haldin sölusýning sem reikna má með að hefjist um kl. 15:30. Skráningargjald á sölusýninguna er 2000 kr. 

Skránig fyrir forkoðun folalda og á sölusýningu fer fram á heimasíðu Léttis. Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 28. janúar.


UPPLÝSINGAR UM RÆKTUNARBÚ
(10. desember 2008)
Á heimasíðunni er nú hægt að skoða hvaða bú hafa hlotið titilinn "Ræktunarbú ársins" á félagssvæðinu. Einnig eru komnar inn reglur um tilnefninguna sem stjórn HEÞ hefur til hliðsjónar við valið.  Upplýsingarnar eru á linknum
 
"Um HEÞ" hér til hliðar.

SYÐRA-GARÐSHORN RÆKTUNARBÚ ÁRSINS HJÁ HEÞ (3. desember 2008)

     

Góð mæting var á haustfund HEþ                                                        Tilnefnd ræktunarbú frá vinstri: Jónas og Kristín Litla-Dal,    Björgvin Daði Sverrisson á Akureyri fylgist með
                                                                                                                     Vignir Litlu-Brekku, Ingólfur Syðra-Garðshorni og feðg-         af miklum áhuga.
                                                                                                                      arnir Baldvin og Guðlaugur Efri-Rauðalæk. Á myndina
                                                                                                                      vantar ræktendur frá Sauðanesi á Langanesi.

   
Ræktendur efstu hrossa taka við verðlaunum, frá vinstri:                  Syðra-Garðshorn ræktunarbú
Ingólfur fyrir Pílu frá Syðra-Garðshorni, Baldvin fyrir Mátt frá            ársins. Ingólfur með verðlaunin.
Torfunesi og Vilberg fyrir Kappa frá Kommu.
 

Fjölmenni var á árlegum haustfundi HEÞ sem haldinn var í Funaborg, félagsheimili Funamanna í gærkvöldi. Frummælendur voru Elsa Albertsdóttir doktorsnemi við Lbhí, Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur og Þórir Örn Grétarsson frá Sjóvá. Erindin voru fróðleg og skemmtileg og urðu miklar umræður um þau. Syðra-Garðshorn í Svarfaðardal var valið ræktunarbú ársins. Þar stunda hrossarækt  Ingólfur Arnar Kristjánsson og Valgerður Björg Stefánsdóttir. Hrossarækt í Syðra-Garðhorni er ung að árum og ekki stór í sniðum. Á árinu voru sýndar tvær hryssur, sammæðra undan hryssunni Kleopötru Orradóttur frá Nýjabæ. Píla (Adamsdóttir) hlaut í aðaleinkunn 8,50 og efsta sæti í flokki 5v. hryssna á LM 2008 og Snörp 4 vetra (u. Þokka Kýrholti) hlaut í aðaleinkunn 8,01. Meðaleinkunn sýndra hross frá búinu er því 8,26 og meðalaldur 4,5 ár. Frábær árangur hjá Ingólfi og Valgerði. Þá voru veitt verðlaun fyrir efsta stóðhest og efstu hryssu ræktaða af félagsmanni í HEÞ. Píla frá Syðra-Garðhorni var efst hryssna og hlaut hún fyrir sköpulag 8,29, hæfileika 8,64 og í aðaleinkunn 8,50. Ræktandi Ingólfur Arnar Kristjánsson. Efstur stóðhesta var Máttur frá Torfunesi. Hann hlaut fyrir sköpulag 8,38, hæfileika 8,62 og í aðaleinkunn 8,52. Ræktandi Baldvin Kr. Baldvinsson. Sérstaka viðurkenningu hlaut Vilberg Jónsson fyrir að hafa ræktað stóðhestinn Kappa frá Kommu. Kappi var sýndur á Héraðssýningu í Eyjafirði í sumar og sló heimsmet í flokki 4v. stóðhesta. Hann hlaut fyrir sköpulag 8,35, hæfileika 8,47 og í aðaleinkunn 8,42.


BÚ SEM TILNEFND ERU TIL RÆKTUNARVERÐLAUNA HEÞ 2008 (20. nóvember 2008)
Eftirtalin bú eru tilnefnd til ræktunarverðlauna HEÞ: Efri-Rauðalækur, Litli-Dalur, Litla-Brekka, Sauðanes og Syðra-Garðshorn.

HVAÐ KOSTAR AÐ FÓÐRA HESTINN? (19. nóvember 2007)
Hugleiðingar um kostnað við fóðrun og hagagöngu hrossa. Sjá hér.

HAUSTFUNDUR HEÞ  (18. nóvember 2008)
Hinn árlegi Haustundur HEÞ verður að þessu sinni haldinn í Funaborg Melgerðismelum miðvikudaginn 3. desember og hefst hann kl. 20:30. Á fundinum verður valið ræktunarbú ársins á félagssvæðinu, auk þess sem ræktendur efstu hrossa í kynbótadómi hljóta viðurkenningar. Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur fer yfir sviðið í hrossaræktinni og Elsa Albertsdóttir Lbhí flytur athyglisvert erindi sem hún kallar forval til kybótadóms. Einnig mun fulltrúi frá Sjóvá vera með stutta kynningu á hestatryggingum.

MÓTTAKA Á HRYSSUM UNDIR GÍGJAR (8. JÚLÍ 2008)
Tekið verður á móti hryssum sem fara undir Gígjar fimmtudagskvöldið 10. júlí milli kl. 20 - 22.
Hólfið er á Syðra-Fjalli Aðaldal.

HOLLASKRÁ HÉRAÐSSÝNINGAR (7. JÚNÍ 2008)
Smellið hér til að sjá hollaskrá.

HÉRAÐSSÝNING Á DALVÍK - TILKYNNING TIL SÝNENDA (6. JÚNÍ 2008)
Um 160 hross eru skráð á sýninguna sem er langt umfram það sem áætlað var. Sýningin mun því byrja mánudaginn 9. júní kl. 13:00. Hollaröðun verður birt á laugardag á www.hryssa.is.  Yfirlitssýning verður á föstudag og byrjar kl. 8.00.

ENN ERU LAUS PLÁSS UNDIR STÓÐHESTA HEÞ (4. JÚNÍ 2008)
Enn eru nokkur pláss laus undir stóðhesta á vegum HEÞ. Hrymur frá Hofi verður fyrra gangmál og undir hann kostar 60.000 m.vsk. Gígjar frá Auðsholtshjáleigu verður langt gangmál eftir Landsmót og er verðið 80.000 m.vsk. Sveinn Hervar frá Þúfu verður seinna gangmál og undir hann kostar 125.000 m.vsk. Pantanir berist á netfangið vignir@bugardur.is , einnig má hringja í Búgarð í síma 460-4477. Fyrstir koma fyrstir fá.

HÉRAÐSSÝNING Á DALVÍK 10. - 13. JÚNÍ  (21. MAÍ 2008)
Kynbótasýning verður haldin í Hringsholti, Dalvík 10. - 13. júní nk. Skráning í Búgarði, í síma 460-4477 eða á netfangið vignir@bugardur . Skráning fer fram dagana 2. - 4. júní. Síðasti greiðsludagur er 4. júní. Gefa þarf upp einstaklingsnúmer við skráningu. Sýningargjald er kr. 12.000 fyrir fulldæmt hross en kr. 8.000 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm (eða hæfileikadóm, sjá reglur) . Hægt er að greiða í Búgarði. Einnig má leggja inn á reikning 302-13-200861, kt. 490169-1729, og senda kvittun á netfangið vignir@bugardur.is skýring: nafn á hrossi. Stóðhesta 5v. og eldri þarf að vera búið að röntgenmynda m.t.t. spatts, ásamt því að taka DNA-sýni og blóðprufu. Reglur um kynbótasýningar má nálgast á heimasíðu B.Í. http://www.bondi.is/pages/120

VORSÝNING Á DALVÍK - HOLL OG TÍMASETNINGAR (13. MAÍ 2008)
21 hross er skráð til þátttöku. Dómar hefjast kl. 13.00 á fimmtudag (15. maí). Yfirlit fer fram á föstudag kl. 10.00.
 Listi yfir þátttakendur:
1 Auðbjörn Kristinsson Harpa Selnesi Byggingadómur
2 Auðbjörn Kristinsson Kofri Galtanesi Byggingadómur
3 Baldvin Ari Guðlaugsson Bylgja Efri-Rauðalæk
4 Baldvin Ari Guðlaugsson Firra Þingnesi
5 Baldvin Ari Guðlaugsson Frosti Efri-Rauðalæk
6 Baldvin Ari Guðlaugsson Sindri Vallanesi
7 Baldvin Ari Guðlaugsson Spurning Efri-Rauðalæk
8 Helga Una Björnsdóttir Tryggvi Geir Steinnesi
9 Jón Hercovic Fróði Akureyri
10 Ríkarður G. Hafdal Hryðja Hrafnsstöðum Byggingadómur
11 Sandra Marin Fruma Akureyri
12 Sandra Marin Frökk Akureyri
13 Sandra Marin Laila Litlalandi
14 Stefán Birgir Stefánsson Embla Fellshlíð
15 Stefán Birgir Stefánsson Krossfari Kálfagerði
16 Stefán Birgir Stefánsson Víga-Glúmur Samkomugerði II
17 Tryggvi Björnsson Erla Gauksmýri
18 Tryggvi Björnsson Ræll Gauksmýri
19 Tryggvi Björnsson Ármann Hrafnsstöðum
20 Þorbjörn Hreinn Matthíasson Óska Hrafn Brún
21 Þorstenn Hólm Stefánsson Tinna Jarðbrú Byggingadómur


GÍGJAR Í GÓÐU FORMI (6. MAÍ 2008)

Gýgjar og Árni Björn Árni Björn undirbýr Gígjar nú fyrir átök vorsins, en þeir félagar stefna á úrtökumót Fáks í B-flokk vegna Landsmóts 2008. Það var létt yfir þeim félögum við æfingu á Fáksvellinum um helgina og má segja að þeir séu til alls líklegir.
Mynd: Árni Björn og Gígjar frá Auðsholtshjáleigu/Krissa
Frétt af vefnum horseexport.is    Smellið á mynd til að sjá hana stærri.

Enn er laus pláss á gangmáli eftir Landsmót, sjá nánar hér til hliðar
undir stóðhestar 2008

VORSÝNING Í EYJAFIRÐI (5. MAÍ 2008)
Kynbótasýning verður haldin í Hringsholti, Dalvík 14.-16. maí nk. Skráning í Búgarði, í síma 460-4477 eða á netfangið vignir@bugardur . Skráning er hafin en síðasti skráningar- og greiðsludagur er föstudagurinn 9. maí . Gefa þarf upp einstaklingsnúmer við skráningu. Sýningargjald er kr. 12.000 fyrir fulldæmt hross en kr. 8.000 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm (eða hæfileikadóm, sjá reglur) . Hægt er að greiða í Búgarði. Einnig má leggja inn á reikning 302-13-200861, kt. 490169-1729, og senda kvittun á netfangið vignir@bugardur.is skýring: nafn á hrossi. Stóðhesta 5v. og eldri þarf að vera búið að röntgenmynda m.t.t. spatts, ásamt því að taka DNA-sýni og blóðprufu. Reglur um kynbótasýningar má nálgast á heimasíðu B.Í. http://www.bondi.is/pages/120 . Þessi sýning er auglýst með fyrirvara um næga þátttöku.

                                                           Búgarður – ráðgjafaþjónusta á Norðausturlandi
                                                           Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga

UNGFOLASKOÐUN LOKIÐ (29. APRÍL 2008)

Í gær fór fram ungfolaskoðun á svæði HEÞ. Alls voru skoðaðir 31 foli, 26 í Suður-Þingeyjarsýslu en 25 folar í Eyjafirði. Kynbótadómararnir Þorvaldur Kristjánsson og Valberg Sigfússon skoðuðu folana og munu þeir senda frá sér skriflegar umsagnir til eigenda innan skamms. Flesta syni áttu Máttur frá Torfunesi, Hróður frá Refsstöðum og Keilir frá Miðsitju. Sambandshestarnir Gustur frá Hóli og Hrymur frá Hofi áttu nokkra afkomendur en ættarsamsetning var fjölbreytt og feður þessara fola um 16 talsins. Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær. Frá vinstri talið Emil frá Torfunesi (Benedikt Arnbjörnsson heldur í hann), Þór frá Björgum (Viðar Bragason heldur í hestinn) og Sigursteinn frá Húsavík. 

ÚTHLUTANIR Á FOLATOLLUM (23. APRÍL 2008)
Á stjórnarfundi HEþ í gær var farið yfir umsóknir í stóðhesta á vegum samtakanna. 31 sóttu um hjá Gusti í þau 7 pláss sem HEþ hefur til ráðstöfunar. Lista yfir þá sem fengu úthlutað má nálgast hér. Umsóknir í Hrym, Gígjar og Svein-Hervar voru 13 -  15 á hest og því komast allir að sem hafa pantað. Greiðsluseðill fyrir staðfestingargjöld verður sendur út á næstu dögum. Enn er því hægt að sækja um í þá hesta og hafa allir jafnan aðgang til að sækja um laus pláss.

NÝR MAÐUR Í STJÓRN HEÞ (18. APRÍL 2008)
Aðalfundur HEÞ var haldinn 18. mars sl. á Öngulsstöðum í Eyjafjarðarsveit. Vilberg Jónsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og í hans stað var kjörinn Höskuldur Jónsson. Fundargerð má nálgast hér.

UNGFOLASKOÐUN  (15.APRÍL 2008)

Fyrirhugað er að bjóða upp á ungfolaskoðun á ógeltum folum  á svæði Búgarðs (í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum) mánudaginn 28. apríl  ef áhugi reynist fyrir hendi. Dómarar verða tveir: Þorvaldur Kristjánsson kynbótadómari, en ekki er frágengið hver kemur með honum. Gefa þeir skriflega umsögn um hvern fola. Farið verður heim á bæi og þarf að greiða 4.000 kr m.vsk fyrir fyrsta folann sem skoðaður er á hverjum stað en 3.000 kr. Fyrir hvern fola umfram það. Athugið að því betri sem aðstaðan er til að meta bygginguna og hreyfingar því öruggari verður dómurinn og því getur verið heppilegt að safna folum saman á ákveðna staði þar sem góð aðstaða er til að meta þá. Panta þarf sem fyrst hjá Vigni í Búgarði í síma 460-4477 eða með því að senda tölvupóst á vignir@bugardur.is


STÓÐHESTAR Á VEGUM HEÞ OG AÐILDARFÉLGA
(14. APRÍL 2008)

Á linknum hér til hliðar  stóðhestar 2008 má nú nálgast upplýsingar um stóðhesta á vegum HEÞ, aðildarfélaga og félagsmanna.


MOLI FRÁ SKRIÐU VERÐUR Í HÖRGÁRDAL Í SUMAR (25. mars 2008)

Verður á húsnotkun, sem og bæði gangmálin sumar 2008 heima í Skriðu í Hörgárdal. Moli er undan Glampa frá Vatnsleysu og Gullinstjörnu frá Akureyri.
Dómur 2007: Sköpulag: 7,5 - 8,0 - 8,0 - 8,5 - 8,0 - 8,5 - 7,5 - 7,0 = 7,98
Hæfileikar: 9,0 - 9,5 - 5,0 - 8,5 - 9,0 - 9,0 - 6,5 = 8,36 Hægt tölt: 9,0 Hægt stökk: 8,0 Aðaleinkunn: 8,21
Nánari upplýsingar má nálgast með því að smella á
stóðhestar 2008.

 
DRANGUR FRÁ HJALLANESI I Í HÖRGÁRDAL (19. mars 2008)

Drangur, sem er á fjórða vetur, verður til afnota í Fornhaga II í Hörgárdal í einu löngu gangmáli sumar 2008. Faðir Drangs er Roði frá Múla og móðir hans er Halla-Skjóna frá Akureyri (jarpskjótt) Fyrstuverðlauna klárhryssan Atley frá Reykjavík (8,25) er alsystir Drangs. Hún hlaut í dómi 8,5 og 9,0 fyrir alla þætti hæfileika, utan skeið (5,0). Hún hlaut 9,0 fyrir tölt,stökk, vilja og geð og fyrir fegurð í reið. Hún hlaut 8,5 fyrir brokk, fet, hægt tölt og hægt stökk, alls 8,33 fyrir hæfileika, "mikið fas og mikil reising". Drangur er í tamningu hjá Guðmundi Björgvinssyni á Kirkjubæ og er stefnt á dóm í vor . Nánari upplýsingar má nálgast með því að smella á stóðhestar 2008.

FÉLAGATÖL UPPFÆRÐ (10. MARS 2008)
Búið er að uppfæra félagatöl aðildarfélaga innan HEÞ. Sjá nánar hér.

FRÉTTABRÉF HEÞ (4. mars 2008)
Nú styttist í að fréttabréf HEÞ verði útbúið og sent út til félagsmanna. Aðildarfélög og félagsmenn geta sent inn upplýsingar um stóðhesta sem verða á þeirra vegum og mun það þá birtast í bréfinu og hér á síðunni.  Vinsamlegast sendið upplýsingar á netfangið vignir@bugardur.is sem allra fyrst. Mynd má gjarnan fylgja og verður hún þá birt hér á heimasíðunni.

FUNDUR MEÐ GUÐLAUGI OG KRISTNI (3. mars 2008)
Árviss fundur með Guðlaugi Antonssyni Hrossaræktarráðunaut og Kristni Guðnasyni formanni Félags Hrossabænda verður haldinn í Ljósvetningabúð mánudaginn 10. mars og hefst hann kl. 20:30.

 

AÐALFUNDUR HEÞ (3. mars 2008)
Aðalfundur HEÞ verður haldinn í Hlöðunni á Öngulsstöðum þriðjudaginn 18. mars kl. 20:30. Allir félagsmenn í aðildarfélögum HEÞ hafa seturétt með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hafa fulltrúar félaganna.
 

TÝR FRÁ SKEIÐHÁHOLTI 3 Í EYJAFJÖRÐINN (14. febrúar 2008)

Stóðhesturinn Týr frá Skeiðháholti 3 verður til afnota í Eyjafirði fyrra tímabil sumarið 2008. Týr er undan Hrafni frá Holtsmúla og Ferju frá Sandhólaferju, sem er fyrstuverðlauna hryssa undan Þokka frá Garði. Í kynbótadómi hefur hann hlotið fyrir sköpulag 8,34 þ.a. 9,0 fyrir höfuð og háls herðar og bóga. Fyrir hæfileika hlaut hann 8,16 þ.a. 9,0 fyrir tölt og fegurð í reið. Aðaleinkunn hans er 8,23. Týr er á vegum Rósbergs Óttarssonar. Nánari upplýsingar má nálgast með því að smella á stóðhestar 2008.

 

FRÉTTIR FRÁ FÉLAGI HROSSABÆNDA (1. febrúar 2008)
Á stjórnarfundi Félags hrossabænda sl. þriðjudag skipti stjórn með sér verkum og er hún nú skipuð á eftirfarandi hátt:
Kristinn Guðnason, Árbæjarhjáleigu 2, formaður.
Sigbjörn Björnsson, Lundum II, varaformaður.
Eyþór Einarsson, Syðra-Skörðugili, gjaldkeri.
Helga Thoroddsen, Þingeyrum, ritari.
Ólafur Einarsson, Torfastöðum, meðstjórnandi.

Eyþór hélt til Ástralíu í vikunni til nokkurra mánaða námsdvalar og mun 1. varamaður í stjórn, Bertha Kvaran í Miðhjáleigu, taka sæti hans á meðan.

Einnig skipaði FHB Bjarna Þorkelsson á Þóroddsstöðum í fagráð í hrossarækt og varamann hans Helga Eggertsson í Kjarri. Frekari fréttir af fundinum munu birtast í fundargerð hér á síðunni fljótlega, en allar stjórnarfundargerðir má finna undir liðnum Fundargerðir í veftrénu hér til vinstri á skjánum. /HGG
Aðalfundargerð FHB má nálgast hér.     Heimasíða félagsins er á slóðinni  
www.fhb.is

 

STEFNT MEÐ GÍGJAR Í GÆÐINGAKEPPNI (30. janúar 2008)

Tekin hefur verið ákvörðun um að stefnt skuli með Gígjar frá Auðsholtshjáleigu í gæðingakeppni sumarið 2008. Gígjar ehf hefur samið við hinn bráðflinka knapa Árna Björn Pálsson um að taka að sér verkefnið og er hann kominn til hans í þjálfun.

Mynd: Gígjar og Þórdís Erla /Axel

 

SÝNINGARÁÆTLUN 2008 (23. janúar 2008)
Sýningaáætlun kynbótahrossa hefur verið gefin út. Fyrsta kynbótasýning ársins verður að venju á Sauðárkróki í lok apríl. Athygli vekur að kynbótasýning í Reykjavík er nú á dagskrá aftur eftir að hafa legið niðri í nokkur ár. Verður sú sýning 13. til 16. maí. Engin sýning er aftur á móti skráð í Kópavogi.
Stærstu sýningarnar verða að venju á Gaddstaðaflötum og í Hafnarfirði.
Sjá sýningaráætlun hér.

HERTAR KRÖFUR TIL KYNBÓTAHROSSA (23. janúar 2008)  
Ákveðin hafa verið einkunnalágmörk kynbótahrossa fyrir Landsmót 2008. Kröfurnar hafa verið hertar talsvert frá því fyrir Landsmót 2006, eða um fimm stig í hverjum flokki einstaklingssýndra kynbótahrossa. Einnig hafa lágmörk afkvæmasýndra stóðhesta verið hækkuð um tvö stig í aðaleinkunn í kynbótamati. Engar kynbótahryssur verða sýndar með afkvæmum á Landsmóti 2008 en á síðastliðnu ári ákvað Fagráð í hrossarækt að leggja þær af.


Lágmörk einstaklingssýndra kynbótahrossa:

Stóðhestar 4 vetra 8,00.
Stóðhestar 5 vetra 8,15.
Stóðhestar 6 vetra 8,25.
Stóðhestar 7 vetra og eldri 8,30.

Hryssur 4 vetra 7,90.
Hryssur 5 vetra 8,05.
Hryssur 6 vetra 8,15.
Hryssur 7 vetra og eldri 8,20.

Lágmörk fyrir afkvæmasýnda stóðhesta eru:
Heiðursverðlaun: 118 stig í kynbótamati og 50 dæmd afkvæmi eða fleiri.
Fyrstu verðlaun: 118 stig í kynbótamati og 15 dæmd afkvæmi eða fleiri/eða 113 stig í kynbótamati og 30 dæmd afkvæmi eða fleiri.   
 

Ráðstefna um menntamál hestamanna (21. janúar 2008)
Menntamálaráðuneytið og Landssamband hestamannafélaga bjóða til menntaráðstefnu föstudaginn 1. febrúar klukkan 13:00 – 16:00 í ráðstefnusal F/G á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík

Rástefnustjóri: Karítas Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri menningarskrifstofu Menntamálaráðuneytisins.

Dagskrá:
Klukkan 13:00
1. Setning
2. Menntakerfi íþróttahreyfingarinnar. Viðar Sigurjónsson, sviðstjóri fræðslusviðs ÍSÍ
3. Staðan í menntamálum í dag og Matrixa FEIF. Sigurður Sigursveinsson
4. Þróun menntunnar í hestamennsku á Íslandi, Reynir Aðalsteinsson
5. Framtíðarsýn í menntamálum hestamanna - 2-3 stutt erindi
6. Pallborðsumræður – Framtíðarsýn menntunar í hestamennsku

Ráðstefnulok klukkan 16:00
Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis. Skráning er á tölvupóstfangið lh@isi.is

 

Járningar og hófhirðing

ü     Lau. 26. jan.  kl 10:00-18:00 og sun. 27. jan. kl. 9:00-16:00  (19,5 kennslustundir) í Skeifunni, félagsheimili Léttis og reiðhöll. Akureyri.

ü     Stefnt er að því að halda námskeið á Þórshöfn um mánaðarmótin jan/feb – áhugasamir eru beðnir að hafa samband.

 

Fjallað verður um undirstöðuatriði við hófhirðingu og járningu hesta. Kennd verður hófhirðing, tálgun og járningar. Rætt verður um áhrif járningar á hreyfigetu hestsins og fjallað um gerð hófsins og hlutverk. Námskeiðið er að mestu verkleg kennsla og koma þátttakendur því með eigin járningaáhöld. Einnig er boðið upp á að þátttakendur komu með eigin hesta. Hámarksfjöldi þátttakenda 10.

Kennsla: Sigurður Oddur Ragnarsson járningameistari og bóndi.

Tími: Lau. 26. jan.  kl 10:00-18:00 og sun. 27. jan. kl. 9:00-16:00  (19,5 kennslustundir) í Skeifunni, félagsheimili Léttis og í reiðhöll. Akureyri. 

Verð: 22.900

Skráningar: endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími), eða í síma 433 5033/ 433 5000.
Skráningafrestur til mánudagsins 21. janúar!
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 5200 kr (óafturkræft) á reikninginn 1103-26-4237, kt. 411204-3590.


VEL SÓTTUR HAUSTFUNDUR (29. nóvember 2007)
 
   Fleiri myndir og texti hér.


ERINDI Á HAUSTFUNDI HEÞ
(26. nóvember 2007)

Minnum á Haustfund HEÞ sem haldinn verður í Hlíðarbæ miðvikdagskvöldið 28. nóvember kl. 20:30

Eftirfarandi erindi verða flutt:

Þekking – fagmennska – fjármagn
 
 - Finnur Ingólfsson Vesturkoti
Fortamningar hrossa
   - Anton Páll Níelsson, Háskólanum á Hólum
Hrossaræktin
  - Guðlaugur Antonsson Hrossaræktarráðunautur BÍ

Viðkenningar fyrir hæst dæmdu kynbótahross og ræktunarverðlaun HEÞ 2007.
Kaffi og kökur í boði Samtakanna.


 

HVERNIG ER BEST AÐ FÓÐRA HESTINN ?  / NÁMSKEIÐ Á AKUREYRI  (19. nóvember 2007)
 

Námskeiðið er ætlað hestamönnum og hrossaræktendum Grundvöllur góðrar fóðrunar og umhirðu byggist á því að þekkja og skilja hestinn; náttúrulegt atferli hans, uppbyggingu meltingarfæra, kunna að meta holdafar og fóðurþarfir gripsins. Í þessa þætti verður farið á námskeiðinu, jafnframt verður farið í heyefnagreiningar og fjallað um mismunandi fóðurtegundir auk þess að farið verður yfir ýmsa mikilvæga umhirðuþætti í hestahaldi. Áhersla verður lögð á reiðhestafóðrun. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum og verklegri þjálfun. Kennsla: Guðrún J. Stefánsdóttir, lektor við hrossaræktardeild Hólaskóla Tími: föstudaginn 18. janúar 2008. Staður: Akureyri
Til að skrá sig á námskeið er best að senda upplýsingar á
endurmenntun@lbhi.is
  (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími) eða í síma 433 5033/ 433 5000.

 

HAUSTFUNDUR HEÞ - TAKIÐ KVÖLDIÐ FRÁ !  (15. nóvember 2007)
Hinn árlegi Haustundur HEÞ verður að þessu sinni haldinn í Hlíðarbæ miðvikudagskvöldið 28. nóvember. Á fundinum verður valið ræktunarbú ársins á félagssvæðinu, auk þess sem ræktendur efstu hrossa í kynbótadómi hljóta viðurkenningar. Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur fer yfir sviðið í hrossaræktinni og fleiri áhugaverðir fyrirlestrar verða á dagskrá. Verður það nánar kynnt þegar nær dregur. Kaffiveitingar í boði Samtakanna.


DAGSKRÁ AÐALFUNDUR FHB (1. nóvember 2007)
Dagskrá aðalfundar Félags hrossabænda, sem fram fer í Sunnusal á Hótel Sögu föstudaginn 9. nóvember nk. liggur nú fyrir og má nálgast með því að smella hér.
 

HROSSARÆKT 2007 - RÁÐSEFNA (1. nóvember 2007)
Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs verður haldinn laugardaginn 10. nóvember nk. í Súlnasal á Hótel Sögu. Ráðstefnan er öllum opin og ráðstefnustjóri er Víkingur Gunnarsson.
Dagskrá:
13:00 Setning - Kristinn Guðnason, formaður Fagráðs í hrossarækt
13:05 Hrossaræktarárið 2007 - Niðurstöður kynbótamats, Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur BÍ
13:30 Heiðursverðlaunahryssur 2007
14:00 Tilnefningar til ræktunarverðlauna 2007
14:15 Erindi:
- Uppruni íslenska hestsins - Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, LbhÍ
- Fortamningar hrossa - Anton Páll Níelsson, Háskólanum á Hólum
- Litir og litbrigði íslenska hestsins - Guðni Þorvaldsson, LbhÍ og Guðrún Stefánsdóttir, háskólanum á Hólum
15:30 Kaffihlé
16:00 Umræður - orðið laust um erindin og ræktunarmál almennt
17:00 Ráðstefnuslit
                                                        Fagráð í hrossarækt

 

  
DNA-sýni  (16. október 2007)
Búgarður Ráðgjafaþjónusta býður áfram upp á DNA-sýnatöku úr hrossum til staðfestingar á ætterni. Skilyrði fyrir A-vottun folalda sem fædd eru frá og með árinu 2007 er að búið sé að taka úr þeim DNA-sýni.
Sýnataka fer þannig fram að tekið er stroksýni úr nös sem er einföld og örugg aðferð. Einungis eru tekin sýni úr einstaklingsmerktum hrossum, þ.e. ör- eða frostmerktum.

Gjaldskráin er eftirfarandi:
Tímagjald fyrir sýnatöku og frágang 2.860 kr/klst + vsk
(Að lágmarki er innheimt fyrir ½ klst. við hverja heimsókn).
Greining á sýni 1.750 kr + vsk
Sýnaglas og sendingarkostnaður 400 kr + vsk
Ekki verður innheimt fyrir akstur en reynt verður að skipuleggja vinnuna þannig að sem minnstur tími fari í milliferðir.
Tekið er við pöntunum í Búgarði í síma 460-4477. Einnig má senda tölvupóst á vignir@bugardur.is.

TRYPPI TIL TAMNINGAR UNDAN GÍGJARI FRÁ AUÐSHOLTSHJÁLEIGU (15. október 2007)
Nú eru komin til tamningar hjá Þórdísi Erlu Gunnarsdóttur fjögur efnileg trippi undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu. Þau eru að fara á 4.vetur, eru vaxtargóð, prúð á fax og tagl, jafnvaxin og reiðhestleg. Öll eru þau gangmikil og hreyfingarfalleg. Trippin eru öll fædd Jóhönnu og Haraldi á Hrafnkelsstöðum. Meðfylgjandi myndir tók Krisbjörg Eyvindsdóttir af þeim Bláskegg (vindóttur) og Eini (brúnn).

SÓNARSKOÐAÐ FRÁ ÁLFI (27. september 2007)
Hryssur sem verið hafa í hólfi í Skógarhlíð í Reykjahverfi hjá Álfi frá Selfossi verða sónarskoðaðar miðvikudaginn 3. október kl. 17:00 og eru eigendur beðnir að nálgast hryssur sínar þar.

SÓNARSKOÐAÐ FRÁ MARKÚSI (25. september 2007)
Hryssur sem verið hafa í hólfi hjá Markúsi frá Langholtsparti verða sónarskoðaðar fimmtudaginn 27. september kl. 11:00. Skoðunin fer fram á Bakka í Svarfaðardal og eru eigendur beðnir að sækja hryssur sínar þangað.

ER GÆÐASTÝRING Í HROSSARÆKT EITTHVAÐ FYRIR ÞIG? (4. september 2007)
Landgræðslan hefur haft umsjón með landnýtingarþætti gæðastýringar í hrossarækt frá því hrossabændur settu gæðastýringuna á laggirnar árið 2000. Gæðastýring í hrossarækt tekur til skýrsluhalds, landnýtingar og heilbrigðis hrossa. Lesa meira.

NIÐURSTÖÐUR SÍÐSUMARSÝNINGAR Á MELGERÐISMELUM (3. september 2007)
Alls mættu 37 hross til dóms á Síðsumarsýningu á Melgerðismelum, sem haldin var 30. og 31 ágúst sl. Þar af voru 3 hross einungis byggingadæmd en 34 hross hlutu fullnaðardóm. 1 stóðhestur hlaut fullnaðardóm, Stormur frá Efri-Rauðalæk 4 vetra foli undan Gusti frá Hóli og Sögu (Kjarvalsdóttur) frá Þverá. Hlaut hann í einkunn 8,06 fyrir sköpulag, 7,53 fyrir hæfileika og 7,74 í aðaleinkunn. Hæst dæmda hryssan var Blanda frá Ytri-Höfdölum undan Skorra frá Blönduósi og Lísu frá Koti. Hún hlaut í einkunn 7,87 fyrir sköpulag, 8,19 fyrir hæfileika og 8,06 í aðaleinkunn. Niðurstöður dóma má nálgast með því að smella hér. Meðfylgjandi eru myndir af efstu hrossum í hverjum flokki. Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.

   
        Hryssur 7 vetra og eldri                                   6 vetra hryssur                                  5 vetra hryssur

 

                4 vetra hryssur                     4 vetra stóðh.

Hollaskrá fyrir yfirlit (30. ágúst 2007)
Hollaskrá má nálgast hér

Síðsumarsýningin sem vera átti á Dalvík á morgun verður á Melgerðismelum
Þar sem völlurinn á Dalvík er ófær vegna bleytu hefur verið ákveðið að færa sýninguna á Melgerðismela. Dagskrá er að öðru leyti óbreytt. Byggingardómur fer fram í stóðhestahúsi.

HOLLASKRÁ UPPFÆRT 28/8
Hollaskrá má nálgast hér. Yfirlitssýning verður föstudaginn 31. ágúst og hefst kl. 10:00.

1 DAGUR + YFIRLIT Á DALVÍK (24. ágúst 2007)
Um 40 hross eru skráð á síðsumarsýninguna á Dalvík. Það þýðir að einn langur dagur nægir í dóma. Dómar munu því hefjast fimmtudagsmorgun kl. 8,00. Hollaskrá verður birt á mánudaginn.

SKRÁNING Á SÍÐSUMARSÝNINGU KYNBÓTAHROSSA (15. ágúst 2007)
Síðsumarsýning á Dalvík - skráningarfrestur
Síðsumarsýning kynbótahrossa verður haldin í Hringsholti, Dalvík 29.- 31. ágúst nk. Skráning er hafin en síðasti skráningar- og greiðsludagur er 22. ágúst. Tekið er við skráningum í síma 460-4477 eða á netfangið vignir@bugardur Sýningargjald er kr. 10.500 fyrir fulldæmt hross en kr. 7.000 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm. Skráningargjald má leggja inn á reikning 302-13-200861, kt. 490169-1729, og senda kvittun á netfangið vignir@bugardur.is skýring: nafn á hrossi.


GÓÐ FYLJUN HJÁ ÁLFI
(15. ágúst 2007)
Búið er að sónarskoða þær hryssur sem voru hjá Álfi á fyrra gangmáli. Í hólfinu voru 30 hryssur og er búið að staðfesta fyl í 25 hryssum. Eftir er að skoða 2 hryssur. Það er því ljóst að fyljunarhlutfall verður gott, eða á bilinu 83 - 90%.

SÍÐSUMARSÝNING NORÐURLANDS - DALVÍK  (30.júlíí 2007)

Kynbótasýning verður haldin í Hringsholti við Dalvík 29.-31. ágúst nk. Skráning verður nánar auglýst þegar nær dregur. Rétt er að minna eigendur kynbótahrossa á að öll hross sem til sýningar koma þurfa að vera grunnskráð í WorldFeng og einstaklingsmerkt. Stóðhesta  5v. og eldri þarf að vera búið að röntgenmynda m.t.t. spatts, ásamt því að taka DNA-sýni og blóðprufu.
 
Reglur um kynbótasýningar
 
 

ÁLFUR - SÓNARSKOÐUN ÚR FYRRA GANGMÁLI (23. júlí 2007)
Sónarskoðað verður á Melgerðismelum mánudaginn 13. ágúst kl. 17:00.

GÍGJAR LANGT GANGMÁL Á YTRI-BÆGISÁ
(20. júlí 2007)


Smellið á auglýsinguna til að sjá hana stærri.

ÁLFUR - SEINNA GANGMÁL
(20. júlí 2007)

Hryssur á seinna gangmál eiga að mæta í hólf í Skógarhlíð Reykjahverfi laugardagskvöldið 28. júlí milli kl. 20 - 22.

HOLLASKRÁ FYRIR YFIRLIT (14. júní 2007)
Yfirlitssýning hefst kl. 10:00 á yngstu hryssum og endar á elstu stóðhestum.
 

HÉRAÐSSÝNING HOLLARÖÐ (8. júní 2007)
Vegna mikilla skráninga munu dómar hefjast mánudaginn 11. júní kl 14:00 en ekki þriðjudaginn 12. júní eins og áætlað var.
Hollaröð má nálgast með því að smella
hér (birt með fyrirvara um breytingar) Yfirlitssýning fer fram fimmtudaginn 14. júní og hefst kl. 10:00 á yngstu hryssum og endar á elstu stóðhestum.

HÉRAÐSSÝNING Í EYJAFIRÐI (30. maí 2007)
Héraðssýning kynbótahrossa verður haldin í Hringsholti, Dalvík 12.- 14. júní nk. Skráning í Búgarði, í síma 460-4477 eða á netfangið vignir@bugardur . Skráning er hafin en síðasti skráningar- og greiðsludagur er 5. júní. Gefa þarf upp einstaklingsnúmer við skráningu.
Sýningargjald er kr. 10.500 fyrir fulldæmt hross en kr. 7.000 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm. Hægt er að greiða í Búgarði. Einnig má leggja inn á reikning
302-13-200861, kt. 490169-1729, og senda kvittun á netfangið vignir@bugardur.is skýring: nafn á hrossi Stóðhesta  5v. og eldri þarf að vera búið að röntgenmynda m.t.t. spatts, ásamt því að taka DNA-sýni og blóðprufu. Reglur um kynbótasýningar má nálgast hér.
Boðið verður uppá DNA sýnatöku á mótsstað. Sýnatakan kostar 3.200 kr á hross, þetta þarf að panta um leið og hross er skráð til sýningar.
Þeir sem óska eftir að geyma sýningahross í Hringsholti á meðan á móti stendur hafi samband við Stefán Friðgeirsson
í gsm. 897-0278
.


HRYMUR Í HÚSNOTKUN (15. maí 2007)
Stóðhesturinn Hrymur frá Hofi er nú byrjaður að gagnast hryssum á húsmáli hjá Benedikt á Bergstöðum í Aðaldal. Nokkur pláss eru enn laus undir klárinn (6 þegar þetta er ritað). Þeir sem áhuga hafa á að nýta tækifærið hafi samband sem fyrst við Zophonías í síma 892-6905. Video af Hrym - mars 2006 (21mb). Dóma og afkvæmalista Hryms má sjá með því að skoða "hestarnir okkar" hér til hliðar

 

HÉRAÐSSÝNING Í EYJAFIRÐI (15. maí 2007)
Kynbótasýning verður haldin í Hringsholti við Dalvík 12.-14. júní nk. Skráning verður nánar auglýst þegar nær dregur. Rétt er að minna eigendur kynbótahrossa á að öll hross sem til sýningar koma þurfa að vera grunnskráð í WorldFeng og einstaklingsmerkt. Stóðhesta  5v. og eldri þarf að vera búið að röntgenmynda m.t.t. spatts, ásamt því að taka DNA-sýni og blóðprufu.
 
Reglur um kynbótasýningar
 
Sýningaráætlun 2007, allt landið
 

Inntökuskilyrði fyrir kynbótahross á FM 2007

 

GÁTLISTI FYRIR UMSJÓNARMENN STÓÐHESTA (9. Maí  2007)
Félag hrossabænda, Bændasamtök Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum, Landbúnaðarstofnun, Landbúnaðarháskóli Íslands og Landgræðslan hafa tekið saman gátlista fyrir umsjónarmenn stóðhesta þar sem fram koma ýmis heilræði. Meira.

 

VIDEO AF HRYM (3. maí 2007)
Veturinn 2006 var Hrymur í þjálfun hjá Sigurði Sigurðarsyni í Þjóðólfshaga. Stjórn HEÞ heimsótti Sigga í byrjun marsmánaðar og var sýningin tekin á video. Hér má sjá brot af því. Myndasmiður er Vignir Sigurólason. Með því að smella hér má sjá umrætt video (stærð 21 mb). Fleiri upplýsingar um Hrym ss. dóma og afkvæmalista má sjá með því að smella á hestarnir okkar.

 

UNGFOLASKOÐUN LOKIÐ (3. maí 2007)
Í gær fór fram ungfolaskoðun á starfssvæði Búgarðs ráðgjafaþjónustu. Skoðunin var framkvæmd af Eyþóri Einarssyni og Þorvaldi Kristjánssyni kynbótadómurum. 29 folar voru skoðaðir, flestir 2 og 3 vetra en einnig nokkrir veturgamlir. Eigendur þessara fola munu svo innan skamms fá senda skriflegar umsagnir. Eftirtaldir eru feður þeirra fola sem skoðaðir voru: Blær og Máttur frá Torfunesi, Dalvar og Gígjar frá Auðsholtshjáleigu, Hróður frá Refsstöðum, Keilir frá Miðsitju, Glampi frá Vatnsleysu, Kjarni frá Varmalæk, Júlí frá Syðra-Hóli, Oddur frá Selfossi, Hrymur frá Hofi, Þorsti frá Garði, Ofsi frá Brún, Moli frá Skriðu, Hvinur frá Egilsstaðakoti, Markús frá Langholtsparti, Þytur frá Neðra-Seli, Hágangur frá Narfastöðum, Stæll frá Miðkoti, Toppur frá Eyjólfsstöðum, Þristur frá Feti og Garpur frá Kárastöðum.
 

UNGFOLASKOÐUN (17. apríl 2007)
Fyrirhugað er að bjóða upp á ungfolaskoðun á ógeltum folum  á svæði Búgarðs (í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum) miðvikudaginn 2. maí ef áhugi reynist fyrir hendi. Skoðunin er framkvæmd af kynbótadómurunum Eyþóri Einarssyni og Þorvaldi Kristjánssyni og gefa þeir skriflega umsögn um hvern fola. Farið verður heim á bæi og þarf að greiða 4.000 kr m.vsk fyrir fyrsta folann sem skoðaður er á hverjum stað en 3.000 kr. Fyrir hvern fola umfram það. Athugið að því betri sem aðstaðan er til að meta bygginguna og hreyfingar því öruggari verður dómurinn og því getur verið heppilegt að safna folum saman á ákveðna staði þar sem góð aðstaða er til að meta þá. Panta þarf sem fyrst hjá Vigni í síma 460-4477 / 896-1838 eða með því að senda tölvupóst á vignir@bugardur.is

 

VORSÝNING KYNBÓTAHROSSA Á SAUÐÁRKRÓKI 2007 (2. apríl 2007)
Haldin í tengslum við Tekið til kostanna dagana 20.-21. apríl. Skráning og upplýsingar: Leiðbeiningamiðstöðin s: 455-7100. Síðasti skráninga- og greiðsludagur: fimmtudagurinn 12.apríl. Skráningagjald:  Fullnaðardómur: 10.500 kr. m. vsk.,  Byggingardómur: 7.000 kr. m. vsk. Greiðist inn á: 1125 (Sparisjóður Hólahr.) – 26 – 0710, Kt: 580901-3010 skýring: Nafn á hrossi. Til að fá endurgreitt sýningargjald þarf að tilkynna forföll fyrir 19. apríl. Dómar fara fram á föstudegi og yfirlitssýning á laugardegi kl:10:00.
Ath. DNA-sýni, blóðsýni og röntgenmyndir af stóðhestum fimm vetra og eldri.


KYNBÓTADAGUR Á MIÐFOSSUM BORGARFIRÐI 
(29. mars 2007)
Námskeið í kynbótadómum haldið í samstarfi LbhÍ og Félags Hrossabænda.
Tími: 14. apríl. Klukkan 10:00 – 17:00. Staðsetning: Mið-Fossar í Borgarfirði
Markmið: Markmið með námskeiðinu er að þátttakendur fræðist um hæfileika hrossa. Farið verður yfir dómkvarðann og hross skoðuð í reið. Hver gangtegund verður tekin fyrir og þeir þættir sem horft er til þegar hún er metin. Vilji og geðslag og fegurð í reið eru tekin fyrir á sama hátt. Námskeiðið byggist á sýnikennslu og fyrirlestrum þar sem hross af ýmsum toga verða notuð sem dæmi.
Kennarar: Kynbótadómararnir Jón Vilmundarson, Eyþór Einarsson, Valberg Sigfússon og Þorvaldur Kristjánsson ásamt Reyni Aðalsteinssyni tamningameistara.

Verð: 10.000 kr.  Fólk á lögbýlum getur sótt um styrkt til Starfsmenntasjóðs bænda. Skráning: Á heimasíðu skólans www.lbhi.is undir Námskeið eða hjá
Ásdísi Helgu Bjarnadóttur: 433-5033, 843-5308, endurmenntun@lbhi.is  Skráningarfrestur til 12. apríl.

 

ÁRSSKÝRSLA OG AÐALFUNDARGERÐ (26. mars 2007)
Aðalfundur var haldinn í Hlíðarbæ 15. mars sl. Hér má nálgast fundargerð og skýrslu stjórnar.
 

 

ÚTHLUTUN FOLATOLLA (23. mars 2007)
Á stjórnarfundi HEÞ í gær var gengið frá úthlutun folatolla undir eignarhesta og leiguhesta á vegum Samtakanna. Mikil ásókn var í hestana og ljóst að færri komast að en vilja.Um 90 pantanir voru í Álf á fyrra gangmáli, þ.a. 75 frá félagsmönnum og  80 pantanir í seinna gangmál, þ.a. 60 frá félagsmönnum sem ekki fengu úthlutað í fyrra gangmál. 50 pantanir bárust í Gust og 23 í Hrym,  þeir verða báðir í húsnotkun. 47 pantanir bárust í Gígjar en verið er að skoða þann möguleika að lengja gangmálið þannig að allir komist að. Á næstu dögum verða sendir út greiðsluseðlar fyrir staðfestingargjaldi. Með því að smella hér  má sjá lista yfir úthlutaða tolla.
 


STÓÐHESTAR HEÞ 2007
(16. febrúar 2007)

Fréttabréf er nú á leið til félagsmanna með upplýsingum um stóðhesta sem verða á vegum HEÞ og deilda sumarið 2007. Linkurinn hér til hliðar hefur einnig verið uppfærður. Félagsmenn eru hvattir til að láta umsjónarmann vefsins vita af stóðhestum á þeirra vegum og upplýsingar verða birtar hér á vefnum. Netfangið er vignir@bugardur.is

 

 

AÐALFUNDUR HEÞ (16. febrúar 2007)

Nú styttist í aðalfund og mun Hrossaræktarfélagið Framfari halda fundinn. Staður og tími hefur verið ákveðinn: Hlíðarbær 15. mars kl. 20:00

 

 

HROSSARÆKTARFUNDUR (16. febrúar 2007)

Almennur fundur um hrossarækt og málefni hestamanna verður haldinn í Sveinbjarnargerði 27. febrúar kl. 20:30. Frummælendur verða Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur BÍ og Kristinn Guðnason formaður Félags Hrossabænda. Kaffiveitingar í boði HEÞ.
 

Fréttir 2004 Fréttir 2005 Fréttir 2006

o