| |
RÆKTUNARBÚ ÁRSINS
Hrossaæktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga veita viðurkenningu þeim félagsmanni
er sýnir framúrskarandi árangur á sviði hrossaræktar. Slík viðurkenning er
veitt ár hvert.
Reglur
- Fullgildir félagar í HEÞ sem reka
starfsemi sína á félagssvæðinu geta hlotið þessa viðurkenningu.
- Stjórn HEÞ velur verðlaunahafa.
- Viðurkenningin er veitt á
uppskeruhátíð Samtakanna, félagsfundi, aðalfundi eða við önnur tækifæri sem
stjórn metur við hæfi.
- Verðlaunin eru áritaður
farandgripur, ásamt árituðu viðurkenningarskjali.
Forsendur fyrir vali
Við val á Ræktunarbúi ársins skulu
eftirfarandi atriði höfð til hliðsjónar
- Meðaleinkunnir kynbótahrossa sem
hlutu fullnaðardóm í kynbótasýningu á árinu. Þar skal tekið tillit til
aldurs og hvort um endursýningu er að ræða.
- Frábær árangur einstakra
kynbótahrossa.
- Góður árangur í afkvæmasýningu
stóðhests eða hryssu.
- Fjöldi kynbótahrossa sem koma í
fyrsta kynbótadóm á árinu og aldur þeirra.
- Hvort sami aðili hefur hlotið
viðurkenninguna skömmu áður.
- Önnur atriði sem geta haft áhrif á
val eru: Góður árangur í gæðinga- og íþróttakeppni, góð markaðssetning,
áralöng farsæl hrossarækt, athyglisverð nýjung, gæðastýring o.fl. sem stjórn
telur til fyrirmyndar fyrir ræktunarbú.
|